Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 63

Faxi - 01.12.1985, Page 63
HEGÐUNARREGLUR Lifnaðarhættir kennslukonunnar hafa breyst verulega síðustu 60-70 árin. I stéttarblaði kennara frá 1915 má finna þessar hegðunarreglur kennslukvenna þeirra tíma. ★ Þú mátt ekki giftast meðan starfs- samningur þinn er í gildi. ★ Þú mátt ekld láta sjá þig í félags- skap karlmanna. ★ Þú verður að vera heima hjá þér frá klukkan 8 að kvöldi til 6 að morgni nema skólastarfið kreíjist annars. ★ Þú mátt ekki láta sjá þig á reiki í miðborginni eða fara inn í ísbúð. ★ Þú mátt ekki fara út fyrir borgar- mörkin nema með leyfi skóla- nefndarformanns. ★ Þú mátt ekki ferðast í bfl eða vagni með karlmanni, nema hann sé faðir þinn eða bróðir. ★ Þú mátt ekki reykja sígarettur. ★ Þú mátt ekki klæðast skærlitum fötum. ★ Þú mátt ekki undir nokkrum kringumstæðum lita á þér hárið. ★ Þú verður að vera í að minnsta kosti tveimur undirpilsum. ★ I’ilsin mega ekki vera styttri en fimm sentimetrum yfir ökla. ★ Til þess að halda skólastofunni hreinni og snyrtilegri verður þú að sópa gólfið minnst einu sinni á dag, skúra það minnst einu sinni í viku, hreinsa töfluna minnst einu sinni á dag, og kveikja upp klukkan 7 á morgnana, svo stofan sé orðin notaleg klukkan 8. Buckeye Farm News. • LANGÞRÁÐ GÖTULÝSING Á þjóðveginum gegnum Njarðvíkur- bæ hafa oft orðið stór umferðarslys - margir látið lífið og mikið eignatjón orðið. Reynt hefur verið að bægja hættunni frá með bættri götulýsingu, það hefur verið gert í áföngum nú síð- ast í haust með góðri lýsingu alla leið inn í Innri-Njarðvík. Kafflð er upprunnið frá hitabeltisskógum Afríku. Það er unnið úr berjum af sí- grænum runnum og trjám kaffiplönt- unnar. Kaffitréð vex villt í uppruna- legum heimkynnum sínum. Til eru um 25 mismunandi afbrigði þess. Um þriðjungur mannkyns drekkur itaifi að staðaldri, ýmist heitt eða lcalt. Að- alvinsældir kaffis byggjast á áhrifum þess. Þeim veldur koffínið. í arabíska kaffinu er koffíninnihaldið 0,8% til 1,5%, en 1,6% til 2,5% í Robustakaffi. (Af þeim styrkleika er nain Robusta- kaffis dregið. Robust þýðir: Sterkur/- bragðmikill). Alkunnugt er, að mikil kaffidrykkja getur valdið hjartasjúk- dómum, mígreni, bjúg, langvarandi asma og svefntruflunum. Ræktun kaffitrjáa I Mið- og Suður-Ameríku er mest ræktað af arabisku lcaffi, en Robusta- kaffi er algengara í Afríku. Til eru ým- is afbrigði af þessum tveimur algengu tegundum kaffitrjáa. Kaffitré þurfa mikinn hita til vaxtar. Heppilegt hitastig er 23-24 gráður á Celsius. Úrkoma þarf að vera frá 1500 til 2000 millimetrar á ári. Það nægir til dæmis við ræktunina í Arabíu þó þar komi 2-3 mánaða þurrkatími árlega. Ef úrkoma er minni en 1000 milimetr- ar á ári þarf að vökva plönturnar. Plöntun kaffitrjáa fer nú fram á opn- um skóglausum svæðum. Eru u.þ.b. 1200 til 1800 plöntur á hektara. Fyrstu 3 til 4 árin þurfa plönturnar mikla umhirðu og vökvun. Eftir það fara ber trjánna að þroskast, og síðast verða þau mjög bragösterk og girnileg í útliti. Berin eru nokkurn tíma að ná fullum þroska. Fer það mest eftir veð- urfari. Ber Arabíu kaffisins þroskast á u.þ.b. sjö mánuðum, en ber Robusta kaffisins á níu mánuðum. Fullþroslca verða berin rauð að lit. Þau eru tínd af með höndunum. Fyrr á tímum tíðkaðist að rækta kaffi í skugga trjánna, en það gaf minni uppskeru, 500—1000 kg. af hverjum hektara. Um 1960 hófust nýj- ar aðferðir við ræktun sem gáfu allt að tvær til þrjár lestir af hreinu lcaffi af hektara. Nú er algengast að af hverj- um hektara fáist 800 til 1200 kg. af Arabíu kal'fi, en 1000-1800 kg. af Robustakaffi. Brennsla og mölun Eftir að kaffiberin hafa verið tínd af trjánum hefst flókin ferð þeirra í gegn- um alls konar vélar og áhöld. Berin eru hreinsuð og brennd við mjög hátt hitastig, 220 til 230 gráður á Celsius. Verða þá til hinar alþekktu kaffibaun- ir. Losna þá ýmis efni úr þeim við brennsluna og þær fá brúnan lit. Eftir það fara baunirnar í mölun. Mölunin er mismikil og kaffið verður miskom- að. Surnt er fínmalað, annað grófara. Þar verða mismunandi gerðir kaffis, t.d. að styrkleika. Þannig er t.d. espresso kaffi búið til. Kaffirót Snemma hóí'u menn að drýgja kaffið með svokallaðri kaffirót, eða exporti, eins og það var kallað hérlendis. Exportið var notað hér á landi allt fram yfir 1960. í sumum löndum hef- ur rótin jafnvel að miklu leyti verið notuð í stað kaffis. Til dæmis í Belgíu og Hollandi, Þýskalandi og austur í Indlandi. Heimslfamleiðsla Fram til 1971 var Brasilía mesta kaffiræktarland í heimi. En þá hafði hlutdeild Brasilíu í kaffiframleiðsl- unni lækkað úr 66% árið 1900 í 41% 1971. Kólumbía framleiðir næstmest allra ríkja af kaffi. I þriðja sæti var Fílabeinsströndin í Afríku. Árið 1971 voru Evrópumenn mestu lcaffisvelgir í heimi, en þeir fluttu inn 1.800,000 lestir af kaffi. Bandaríkjamenn drukku næst mest, íluttu inn 1.250,000 lestir. Upphaf kaffidrykkju Villtar kaífiplöntur, upprunnar við borgina Kaffa (eða Kefa) í suðvestur Eþíópíu í Afríku, voru fluttar af arab- ískum kaupmönnum til suður Arabíu á 15. öld. Þar hófst ræktun þeirra. Annars eru til ýmsar gamlar sögu- sagnir um menn sem komust í kynni við kaffið. Ein sagan er um arabískan geitahirði, sem talið er að hafi verið uppi um 850 e. Kr. Geitur hans kom- ust í villta kaffirunna og átu þá af mik- illi græðgi. Áhrifin urðu þau, að skepnurnar hegðuðu sér undarlega og tóku upp á ýmsum kúnstum. í berjum kaffirunnanna hefur því verið mikið koffín. Sennilega hafa arabískir kaupmenn og sæfarendur sem sigldu um Rauða- hafið, snemma komist í kynni við þennan drykk, þó öruggar sannanir séu fyrst til um flutning kaffis til Arabíu á 15. öld. Arabar höfðu þá öld- um saman stundað verslun í austur Afríku. Kaffið hlaut skjóta útbreiðslu meðal Araba, sérstaklega á Arabíuskagan- um. Því ollu hin örvandi áhrif þess. Kaffið hefur þá verið mun sterkara en nú á tímum. Það var brátt tekið upp við trúarathafnir meðal Múhameðs- trúarmanna. En hinir íltaldssömu Múslimar vildu banna notkun þess. Töldu það hafa svipuð áhrif og áfengi, en það bannar Kóraninn. Því lá hegn- ing við neyslu kaffisins. En kaffið hélt áfram að breiðast út, enda hefur það sennilega fært arabískum kaupmönn- um björg í bú, sérstaklega vegna versl- unar við Evrópu. Vegna flutninganna, sem aðallega fóru fram á úlföldum, var aðeins hægt að flytja lítið magn af lcaffi í einu, á markaði í Evrópu. Verð þess varð því mjög hátt, þar sem eftir- spurnin var meiri en framboðið. Nafnorðið kaffi er líklega dregið af arabíska orðinu: qahwah. Þaðan barst orðið inn í tyrknesku: kahveh. Að vísu halda sumir málfræðingar því fram, að orðið sé dregið af borginni Kaffa í Eþíópíu, sem er álitin upphafsstaður kaffisins. Um þetta skal þó ekkert fullyrt. En orðið breiddist brátt út tii flestra álfa heimsins, og inn í óskyldustu þjóð- tungur. Skulu nefnd hér fáein dæmi. Danska og sænska: Kaffe. Bæheimska (í Tékkóslóvakíu): Kava. Franska, spænska, portúgalska: Café. I^atína: Coffea. Finnska: Kahvi. Hollenska: Kaffie. Gríska: Kafeó. Ungverska: Kavé. Rússneska: Koplic. Pólska: Kawa. Kínverska: Kai-fey. Japanska: Kéhi. Persneska: Qéhvé. Kaffið í Evrópu Frá ríkjum Araba barst kaffið til Evr- ópu á 16. og 17. öld, sennilega um fýrkland. Kaffið olli einnig deilum í Evrópu. Sumir töldu það skaðlegt og vildu banna það strax, aðrir töldu það nokkurs konar heilsudrykk, jafnvel töfradrykk. Um miðja 17. öld var kaffið orðið verulega vinsælt, sérstak- lega eftir að tekið var að stofna kaffi- hús. I'yrsta kaffihúsiö í Lundúnum var opnað um 1652 al' Suðurlanda- búanum Pasqua Rosée. Hann lét og fyrstur prenta kaffiauglýsingar til að hengja upp á götum og torgum. I aug- lýsingu hans frá 1652, segir m.a. um kaffið og áhrif þess: „Hressir andann og eykur glað- lyndi. . . er gott gegn sárindum í aug- um. . . sérstaklega gott sem vörn gegn bjúg, liðagigt og skyrbjúg. . . hvorki fylgir því niðurgangur né hægðatregða“. Kaffið var komið til íslands rúmri öld eftir birtingu þessarar auglýsing- ar, og nam fyrst land í Reykjavík. Kaffihúsum fjölgaöi fljótt, og þau urðu brátt miðstöövar stórborga, sem voru í örum vexti. Á kaffihúsum dafn- aði marglitt mannlíf. Þar urðu oft miklar umræður um stjórnmál og bókmenntir, ijármál og félagsmál, svo nokkuð sé nefnt. Rekstur kaliihúsa varð líka fljótt ábatasamur. Frá Bret- landi bárust áhrif þeirra til nýlendn- anna í Ameríku. Fyrstu kaffihúsin þar voru stofnuð um 1689 í borgunum Boston, Ffladelfíu og New York. „Kalfihús kaupmannanna" varstofn- að 1737 í New York. Sumir fræðimenn álíta jafnvel, að þar hafi einna fyrst verið lagt á ráðin um stofnun Banda- rílcja Norður-Ameríku, um 40 árum síðar. Slík voru áhrif kaffihúsanna, þau fæddu af sér heil heimsveldi. Kaffið varð æ vinsælla Fram til loka 17. aldar kom stærsti hluti lcaffiuppskerunnar frá Yemen í suður Arabíu. En þar kom, að eftir- spurn varð svo mikil, að arabískir kaupmenn gátu ekki sinnt flutning- unum á hinum hægfara úlfaldalestum sínum. Evrópumenn, sem þá voru í nýlenduleit, tóku nú fruntkvæðið í ræktun kaffisins. Á eynni Sri Umlca (Ceylon) við Indland, hófst kalfirækt- un 1658, í hollensku nýlendunum í Indónesíu um 1696. í Mið-Ameríku hófst kaffiræktun á eyjunum í Karab- íska hafinu: 1715 á Haiti og Santo Domingo, Jamica 1730, Kúbu 1748, Puerto Rico 1755. Á meginlandinu: i Costa Rica 1779, Mexfkó 1790. í Suð- ur-Ameríku: í Brasiliu 1727, Venezu- ella 1784, Kólumbíu seint á 18. öld og til Hawaii-eyja barst kaffiræktun 1825. (Þýtt úr Brcsku alfrteðilxtkinni 4. bindi, bls. 818-820. Stærri útgál'an frá 1982. Enn- fremur stuðst við útgáfuna frá 1957, 5. bindi, bls. 944). Skúli Magnússon. Þaö er álit manna í sveitinni aö þaö séu minnstu lömbin á haustin sem fæöast eftir aö þau eru borin. (Frásögn eins bú- fræöings). Hjálækninum. — Læknir- inn: Jæja maöur minn. Hvaö hafiö þér nú á samviskunni? — Sjúklingurinn: Útbrot á sitjandanum. FAXI 375

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.