Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 69

Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 69
málið var leyst á þennan hátt í bili. — Margt fleira varðandi vina- bæjatengslin var að sjálfsögðu rætt á þessum fundi í Ttollháttan. En mig langar að geta þess að ég hef ítrekað orðið vör við mikla ánægju með heimagistingu á vinabæjamótum, sem hófst í Keflavík 1978 og var aftur fyrir NF fulltrúa í Kerava 1984. Sam- þykkt var að Norrænu félögin gætu annast þessa hlið mála fyrir þá sem þess óskuðu. 2. Á s.l. vetri gaf deildin út kynningarblað um vinabæjakeðju Keflavíkur. Þetta var gert með góðum stuðningi Sparisjóðs Keflavíkur, sem ég vil hér með þakka. Blað þetta gáfum við út í tengslum við ritgerðasamkeppni sem við gengumst fyrir meðal nemenda í 8. og 9. bekk grunn- skólans. Þar sem Norðurlandaráð fór af stað með ritgerðasamkeppni á sama tíma, sem l<allaðist, ,Hug- myndabanki norrænna ungl- inga“, þá ákváðum við að sameina framkvæmd þessara verkefna. Við fengum vilyrði fyrir stuðningi bæjarstjórnar og buðum sem aukaverðlaun ferð til vinabæjar- ins Hjörring í Danmörku. Þar átti unglingurinn að dvelja eina viku í unglingabúðum ásamt ungling- um frá fleiri vinabæjum, og síðan gista á dönsku heimili í u.þ.b. vikutíma. — Skólanefnd Keflavík- ur skipaði Sigurð Sigurðsson í undirbúningsnefnd Norræna fé- lagsins. Aðrir í nefndinni voru Sigríður Jóhannesdóttir, kennari, Sveindís Valdimarsdóttir, kenn- ari, ásamt Guðnýju Gunnarsdótt- ur. Við höfðum samband við öll sendiráð Norðurlandanna og fengum bæklinga og upplýsingar. Við ræddum við alla nemendur 8. og 9. bekkjar og dreifðum öll- um þeim upplýsingum, sem við höfðum, til þeirra, ásamt bækl- ingi Norðurlandaráðs varðandi ,,stóru“ samkeppnina, en á þeirra vegum áttu 6 unglingar frá Islandi möguleika á verðlaunum. Við urðum því fyrir miklum von- brigðum þegar aðeins einni rit- gerð var skilað til okkar. — Ég varð þó enn meira undrandi þegar ég skilaði þessari einu ritgerð til skrifstofu Norðurlandaráðs í Reykjavík og komst þar að raun um, að aðeins tvær ritgerðir höfðu borist af öllu landinu til þeirra. Undirtektir voru einnig mjög dræmar á hinum Norðurlöndun- um. Eftir að Norðurlandaráð hafði framlengt skilafrestinn um mánuð, náðust inn 19 ritgerðir af öllu landinu. Vonbrigðin með þetta kynningarátak á markmið- um norrænnar samvinnu urðu því mikil. Að vísu var s.l. vetur óvenju eríiöur nemendum vegna verkfalla kennara, en samt fer ekki hjá því að maður spyrji sjálf- an sig: „Hvað er að? Hvernig er hægt að vekja áhuga unglinga á norrænum samskiptum?" 3. Keflavíkurdeildin tók þátt í ráðstefnu um vinabæjasamstarf- ið, sem fram fór í Norræna húsinu 27. apríl s.l. Þennan samráðsfund sóttu um 50 manns frá norrænu deildunum og sveitastjórnum flestra stærri bæjarfélaga á Suð- Vesturlandi. Álitsgerð fundarins liggur hér frammi fyrir þá sem áhuga hafa á að kynna sér hana, en helsta niðurstaðan reyndist samt vera sú að:, ,Langílestir voru sammála um, að gott samstarf á milli sveitarstjórna og Norræna félagsins væri einn af máttarstólp- unum ívinabæjarsamstarfinu.“ — Það kom m.a. fram að í mörgum sveitafélögum hefur verið komið á fót sameiginlegum vinabæja- nefndum sveitastjórna og félaga- deilda NF, eða þá að sveitastjórnir skipa sérstakan samráðsaðila um vinabæjamálefni milli NF og sveitastjórnanna. 4. Sambandsþing Norræna fé- lagsins var haldið í Munaðarnesi dagana 4.-6. október s.l. Héðan fór 3 fulltrúar: formaður, Guðný Gunnarsdóttir, Liss Ólafsson og Björn Stefánsson. Aðbúnaður og framkvæmd þingsins var með ágætum og ýmislegt fróðlegt kom þar fram. Björn Stefánsson var kjörinn annar af riturum þings- ins, sem reyndist töluvert viða- mikið starf, og vil ég nota tæki- færið og þakka honum framlag hans fyrir hönd deildarinnar. Gylfi Þ. Gíslason var kjörinn formaður sambandsstjórnar. Fulltrúar þingsins skiptust milli hinna ýmsu nefnda þingsins sem skiluðu síðan áliti til umíjöllunar fyrir alla þingfulltrúa. Ferðamálanefnd lagði til að lögð yrði áhersla á að félagsmenn gætu fengið tilboð um mun hag- stæðari ferðir til Norðurlandanna en nú eru í boði, m.a. í formi hóp- ferða. Vinabæjanefnd fjallaði m.a. um handbók fyrir deildir Nor- ræna félagsins sem milliþinga- nefnd frá síðasta sambandsþingi hafði undirbúið. Æskulýðsnefnd fjallaði m.a. um takmarkaðan árangur á kynn- ingarstarli meðal ungs fólks á málefnum Norrænu félaganna. Skipuð var milliþinganefnd, sem á að leita leiða til þess að efla og vinna að árangursríkara æsku- lýðsstarfi innan félagsins. Allsherjarnefnd íjallaði m.a. um tillögu stjórnar í útgáfumál- um. Þ.e. um að draga verulega úr dreifingu á ritinu VI I NORDEN en leggja í staðinn áherslu á út- gáfu fréttabréfa/blaða á íslensku, auk þess sem samþykkt var að sambandsstjórn tæki alfarið við útgáfu á NORRÆNUM JÓLUM, en Reykjavikurdeildin hefur séð um þá útgáfu fram til þessa. Margt fleira var rætt á sam- bandsþinginu og verður fundar- gerð væntanlega send til deilar- innar fljótlega. Nokkur eintök af skýrslu sam- bandsstjórnar 1983-85 liggja hér frammi fyrir þá sem áhuga hafa. Einnig hef ég hér með önnur gögn ffá þinginu ef einhver vill skoða þau nánar. Þar á meðal eru tillög- ur ritnefndar að nýrri stefnuskrá fyrir Norrænu félögin, sem öllum er heimilt að gera athugasemdir við og senda tillögunefnd fyrir 1. nóvember n.k. Að lokum vil ég þakka sam- starfsmönnum mínum í stjórninni s.l. tvö ár. Stundum hefur verið erfitt að ná saman fundum vegna þess að flestir eiga svo annríkt í nútíma þjóðfélagi. Ég hef því lík- lega verið svolítið einráð á stund- um, og nokkra ,,stjórnarfundi“ hef ég haldið í gegnum símann, þó svo ekki sé hægt að bókfæra slíkt löglega í fundargerð. Þakka ykkur samstarfið. . . Guðný Gunnarsdóttir. FAXI óskar lesendum sínum nær ogfjær gleðilegra jóla ogfarsældar á komandi ári Keflavík — Njarðvík Vorum að taka upp: NÝTT JÓLAKONFEKT OG JÓLASÆLGÆTI ÖL OG GOSDRYKKIR (Síebtíeg jóíí gott og far3œít komanbi dr! Þökkum viðskiptin á árinu. Lindin alltaf í leiðinni. LINDIN Hafnargötu 39, sími 1569 FAXI 381
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.