Faxi

Ukioqatigiit

Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 75

Faxi - 01.12.1985, Qupperneq 75
horfin. En meðan ég horfði á þetta, sem var víst örstutta stund, var ég að hugsa um hvað mundi hafa orðið skipinu að grandi, þar sem sjórinn var svo spegilsléttur. Þessa nótt svaf ég hjá móður minni. Vakti ég hana strax og sagði henni frá þessu. 15. apríl sama ár fórst Titanic og er ég í engum efa um að ég hafi séð slysið, áður en það vildi til, enda þótt mér virtist það vera seglskip, öll önnur atriði voru nákvæmlega rétt. Hugskeyti frá Þórði Þorgrímssyni mági mínum Sumarið 1914 ætlaði Þórður mágur minn að koma upp frá Kaupmannahöfn með , ,Ceres‘, sem kom síðast í júnímánuði, en í staðinn fyrir að koma skrifaði hann að hann væri veikur að hann treysti sér ekki til að koma. Móðir hans tók sér þetta mjög nærri og langaði svo til að vita um hvort hann mundi koma upp með næstu ferð , ,Botníu“. Ég stakk því upp á því við hana að senda skeyti til Leith og láta það liggja þar þegar Botnía kæmi þangað. Þá gæti hún fengið að vita hvort hann væri með. Þetta var gjört. Svo liðu 4 dagar og nú var komið fram yfir áætlunardag Botníu og vorum við þá hætt að vonast eftir skeyti. En á fimmta degi að morgni, fæ ég svo sterkt hugskeyti um það að nú sé Þórður einmitt að fá skeytið og sé staddur í Eeith. Ég segi svo frá þessu, en það var ekki tekið veru- lega trúanlegt, sem varla var von. Sama dag fæ ég aftur hugskeyti, að nú sé Þórður að skila skeyti á stöðina í Leith, sem eigi að fara hingað heim, ég leit þá á klukk- una og þá vantar hana 5 mínútur í 12 á hádegi. Ég sagði aftur frá þessu og bætti því við að skeytið mundi koma í dag um kl. 3!4. Sama dag kom skeytið frá Þórði dagsett þann dag í Leith og kl. á skeytinu var 5 mínútur í 12. Þegar Þórður kom heim sagði ég honum frá þessu, en ekki sagðist hann hafa reynt að senda hugskeyti, en mikið hefði hann hugsað heim, því hann var enn lasinn og langaði að komast heim sem fyrst. Hefur svo þessi hugsun hans náð til mín. Oftar hefur það komið fyrir að ég hef fengið hugskeyti þessu lík, þó fleiri séu ekki hér talin. Heym Sumarið 1915 vann maðurinn minn við mótorbát. Þá var þaö einu sinni snemma morguns að hann var að búa sig til að fara til vinnu. Ég var ekki klædd en vak- andi að mér fannst. Björn var í næsta herbergi. Heyrði ég þá gengið upp stigann (við bjuggum á annarri hæð) og barið. Ég heyri að Björn ansar og mér heyrist sá sem talar vera formaður bátsins, sem Björn vann við og hann segja: ,,Þú verður að róa í dag, Björn, okkur vantar mann.“ Að vörmu spori kemur Björn inn til mín og ég spyr hann hvort Sigurður for- maður hafi komið. Björn veit ekk- ert og segir að enginn haíi komið, mig hljóti að hafa dreymt þetta, en þegar við erum að tala um þetta er barið. Það er þá sendimaður frá formanninum með þau boð að Björn verði að róa í dag, því þá vanti mann og það svaraði þeim tíma frá því ég heyrði þetta og þar til sendimaður kom, að ég hef heyrt það nákvæmlega á sama tíma og skipunin var gefin af for- manninum. Jarðarför Guðrúnar Högnadóttur Þegar ég var á landsímastöðinni hér í Keflavík var það einn dag, að ég hafði lítið að gjöra, ég fékk því vinstúlku mína eina til að sitja hjá mér. Var þá glatt á hjalla hjá okkur (því báðar voru ungar) og við alveg lausar við alvarlegar hugleiðingar. Allt í einu kemst ég í mjög einkennilegt ástand, sé ekkert í kringum mig en finnst að ég gangi á eftir líkkistu ásamt mörgu fólki og mér finnst það vera á götu rétt við stöðina. Þetta var- aði örstutt, þangað til ég kom til sjálfrar mín aftur, sagði ég þá vin- stúlku minni þetta strax og sagði það mundi einhver bráðlega deyja þar. Þá lá fyrir dauðanum kona nokkur í þeim hluta bæjarins sem fjær var stöðinni, svo vinstúlka mín getur þess til, að það muni sú kona verða. Því svaraði ég neit- andi, sagði að það yrði einhver hérna rétt hjá, en þar var þá eng- inn veikur. TVeim dögum síðar verður bráð- kvödd gömul kona, Guðrún Högnadóttir að nafni, og átti hún heima í næsta húsi við stöðina. Ég var mesta uppáhald þessarar konu. Ég var auðvitað við jarðar- förina og varð alveg á sarna stað í líkfylgdinni eins og í sýninni. Athugasemd: Frú Marta var um nokkur misseri á landsímastöðinni í Keflavík fyrst eftir að síminn var lagður þangað, þá ung og ógift. Konan er í alla staði mjög vönduð og áreiðanleg og því skal ég ábyrgjast að óhætt er að taka það allt trúanlegt sem ég hefi þegar skrifað hér upp eftir henni. Endir Suðumesjamenn ©íebtíeg jóí ©ott og far^ceít komanbi ár Verzlunarmannafélag Suðurnesja Óskum Grindvíkingum og öðrum Suðurnesjamönnum (Síebiíegra jóía og far3ceí3 komanbi ár3 Bcejarstjórn Grindavíkur FAXI 387
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.