Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.1985, Síða 78

Faxi - 01.12.1985, Síða 78
Forsaga að byggingu Sjúkrahúss Keflavíkurlæknishéraðs FRAMHALD AF BLS. 323 gjafir frá ýmsum aðilum rúmlega kr. 165 þúsund að öðru leyti hafa sveitarstjómir lagt fram stofnfé með tilstyrk ríkisins. Eins og áður hefur komið fram var yfirlæknir ráðinn Bjarni Sig- urðsson, yfirhjúkrunarkona Líney Sigurbjörnsdóttir, og einnig var ráðin Margrét Árnadóttir hjúkmnarkona. Matráðskona Sigríður Guðbrandsdóttir og að- stoðarstúlka í eldhúsi Kristín Guðbrandsdóttir, vökukona Árný Friðriksdóttir. Ráðsmaður Guð- munclur Ingólfsson. (tilv. í tíma- ritið Faxa 9—10 tbl. 1954). ,,Fyrsti sjúklingur sem lagður var inn á sjúkrahúsið var Sesselja Helgadóttir, háöldmð kona úr Keflavík. Fyrsta sængurkona var María Bergmann, sem eignaðist dóttur þann 25. nóvember 1954. Ljósmóðir var Elínrós Benedikts- dóttir. Þetta er aðeins upphaf af sögu sjúkrahússins, en það hefur starfað óslitið síðan.“ Árið 1955 nánar tiltekið 23. febrúar afhenti Rotaryklúbbur Keflavíkur Sjúkrahúsi Keflavík- urlæknishéraðs myndarlega bókagjöf, 1000 bækur, sem vísi að bókasafni við sjúkrahúsið. Forseti klúbbsins Karl G. Magn- ússon héraðslæknir afhenti sjúkrahúsinu bókasafnið. Þessari gjöf fylgdi vandaður bókaskápur, gjöf frá Þórarni Olafssyni tré- smíðameistara. Frú Frída Sig- urðsson flokkaði og skrásetti bækurnar (Faxi feb. 1955 tilv. V.) Fátt virðist hafa verið ritað um rekstur og starfsemi fyrstu tvö starfsár sjúkrahússins, en í árslok 1956 virðist Líney Sigurbjörns- dóttir yfirhjúkmnarkona hafa lát- ið af störfum, því að við því starfi tók þá Elísabet Guðjónsdóttir, sem starfaði til hausts 1957. Yfirlæknir sjúkrahússins Bjarni Sigurðsson andaðist þann 1. júlí 1958, og við störfum hans tók Björn Sigurðsson læknir, þar til að auglýst hefði verið eftir yfir- lækni og eftirmaður Bjarna ráð- inn. Jón Kr. Jóhannsson var ráðinn yfirlæknir að sjúkrahúsinu þann 11. október 1958 og þá um leið var ákveðið að ráða lyflækni að sjúkrahúsinu og var Björn Sig- urðsson ráðinn í þá stöðu. Hann hóf störf þann 1. febrúar 1959. Töluverður hugur virðist hafa verið í mönnum á þessum tíma í sambandi við rekstur sjúkrahúss- ins. Um haustið 1958 var sam- þykkt að óska eftir heimild heil- brigðisráðherra til þess að skipta sjúkrahúsinu í handlæknis- og lyflæknisdeild og óskað eftir reglugerð þar að lútandi. Bókanir ársins 1959 einkennd- ust mjög af erfiðum fjárhag og virðist hafa mátt rekja það að nokkru til þess, hve treglega gekk að fá greiðslur frá sjúkrasaml- ögum. Samt sem áður skeði það á þessu ári, að sjúkrahúsið fékk vilyrði fyrir fjárfestingarleyfl að upphæð kr. 300 þúsund til við- byggingar við sjúkrahúsið. Þessi viðbygging hafði verið til umræðu af og til í um það bil tvö ár. 1 september var ráðin ný yfir- hjúkrunarkona, Dómhildur Gott- liebsdóttir, sem hafði verið yfir- skurðstofuhjúkrunarkona á Líney Sigurbjömsdóttir fyrsta yfir- hjúkrunarkonan. Landsspítalanum og var að koma frá framhaldsnámi í Bandaríkj- unum, er hún var ráðin. Hugað að frekari stækkun I febrúar 1960 voru teikningar tilbúnar af viðbyggingunni við sjúkrahúsið. Sjúkrahússtjórn óskaði eftir því, að þingmenn Reykjaness beittu sér fyrir því, að þessi viðbygging yrði tekin inn í fjárlög yfirstandandi árs. Einnig var skorað á þingmenn aö beita sér fyrir því, að sjúkrahúsið nyti sömu réttinda og fjórðungs- sjúkrahús. Á sjúkrahússtjórnarfundi í apríl sama ár var samþykkt að byggja læknisbústað og sömuleiðis var reynt að ýta á eftir því, að fram- kvæmdir gætu hafist við byggingu sjúkrahússins. Tekið var tilboði Guðmundar Skúlasonar í að byggja upp fokheldan læknisbú- stað. í janúar 1961 var á fundi lagt ffam bréf frá húsameistara ríleis- ins með uppdráttum af viðbygg- ingu við sjúkrahúsið. Fram- kvæmdastjórn sjúkrahússins taldi að stækkun sú, sem teikn- ingarnar gerðu ráð fyrir væri allt of mikil og byggingin mundi ná langt út fyrir lóð sjúkrahússins. Stjórnin taldi æskilegt að í næsta áfanga yrði sjúkrahúsið stækkað upp í það að geta tekið á móti 40—50 sjúklingum. Á þessum sama fundi í janúar 1961 var upp- lýst að Jóhanna Brynjólfsdóttir hafi verið ráðin yfirhjúkrunar- kona. Á árinu 1962 fjölgaði sjúkra- rúmum um tvö, úr 25—27 rúm, en þá mun herbergi matráðskonu hafa verið gert að sjúkrastofu. Björn Sigurðsson yfirlæknir sagði starfi sínu lausu frá og með 15. sept. 1962 og hætti 1. nóv. sama ár. En í byrjun árs 1963 var Arn- björn Olafsson ráðinn að sjúkra- húsinu til svæfinga og deyfinga. Það virðist hafa verið viðloðandi við þetta sjúkrahús, eins og sjálf- sagt flest önnur, að næstum alltaf hefur verið skortur á hjúkrunar- fræðingum, að sjálfsögðu mis- mikill, en þó oft það mikill að rekstur fór úr skorðum. Það finnast ekki tæmandi heim- ildir fyrir íjölda hjúkrunarfræð- inga, en frá vígslu sjúkrahússins og fram til ársins 1963 virðast þeir hafa verið á bilinu einn til þrír. En þegar könnun var gerð á þörfinni 1964 var talið að þeir 390 FAXI
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.