Faxi

Volume

Faxi - 01.12.1985, Page 82

Faxi - 01.12.1985, Page 82
GLEÐISTUND FRAMHALD AF BLS. 382 Óla skans. En helst er ég á því að þær óski þess að karlarnir væru svolítið sprækari — meiri dans- herrar. En það er nú hægara sagt en gjört. Vosbúðin á sjónum og stöðurnar á bryggjum og í köldum beituskúrunum hafa skilið eftir sig stirðleika í öllum liðamótum og strengda vöðva. En úr þessu má bæta með þvi að nota heita pottinn í húsinu og hann er opinn öllu eldra fólki, eftir samkomu- lagi við Elsu Kjartansdóttur, for- stöðukonu, sem hefur síma 4322, eða aðstoðarstúlku hennar Jó- hönnu Hermannsdóttur. Pottur- inn rúmar 8 manns í einu og er mikið notaður. Ein frúin sagði: ,,Hann Frikki minn er bara allt annar maður síðan hann fór að stunda pottinn.“ Eg veit að hún var að segja alveg satt. Ég sá það á Frikka og hef reynt það sjálfur að góður hæfilegur hiti hefur góð áhrif á lúinn líkama. Það er fleira en potturinn, sem hefur aðdrátt- arafl í húsum aldraðra við Suður- götuna. Þar er hægt að fá hár- snyrtingu, sem Harpa Hansen annast. Hárskurð og rakstur hjá Herði Guðmuhdssyni og hand- og fótsnyrtingu hjá Hrefnu Ólafs- dóttur. Allt þetta þarf að panta með nokkrum fyrirvara og er verði stillt í hóf. Athvarf aldraðra var fyrst til húsa vestur á Smáratúni 32. Þar var leiguíbúð vel búin aðstöðu til þessarar þjónustu bæjarins við aldraða og þá sem aðstoðar þurftu með. Það var opnað í byrjun mars s.l., en flutt í hús bæjarins að Suð- urgötu 15, 8. ágúst í sumar. Fyrst var athvarfið opið frá kl. 1—6, en nú er það opið frá kl. 9 til 12 og 1 til 6, alla virka daga. Fyrst var notkun þess dræm, en hefur nú stór aukist. Það kann að vera að nafnið Athvarf aldraðra hafi ekki verið nógu aðlaðandi jafnvel valdið misskilningi, einnig kann staðsetning að hafa verið óheppileg. Nú er athvarfið á besta stað í bænum og skilningur fólks að verða jákvæðari, gagnvart því. Þangað geta allir eldri bæjarbúar sótt hvíld og hressingu, félags- skap og skemmtan. Daggjald er kr. 50,- og fá þá dvalargestir einn- ig kaffi og meðlæti. í framtíðinni er gert ráð fyrir að einnig sé hægt að veita þar hádegisverð, en þá gegn auknu en sanngjörnu gjaldi. Bækur eru lánaðar og mega aldr- aðir taka þær heim til sín, hvort heldur þeir búa í Suðurgötuhús- unum eða úti í bæ. Og rétt er að undirstrika að athvarfið er fyrir alla bæjarbúa sem náð hafa ald- ursmörkunum, hvort heldur þeir búa einir eða eru hjá fjölskyldun- um sínum, eða í húsum aldraðra. Athvarfið heyrir undir félags- máladeild bæjarins. Styrktarfélag aldraðra hefur á ferli sínum unnið mikið starf fyrir aldraða á Suðurnesjum. Klara As- geirsdóttir er félagi í styrktarfé- laginu. Hún stjórnar, á vegum þess, bingói og öðrum þáttum , ,Gleðistunda“. Þær eru því opnar öllu öldnu Suðurnesjafólki. Það eru varla mörg héruð í landinu, sem hafa jafnmyndarlega launað gamla fólkinu framlag þess til uppbyggingar og uppeldis yngri kynslóðarinnar eins og Suður- nesjabúar hafa gert, bæði fyrir til- stuðlan bæja- ogsveitarfélaga, svo og með öflugu félagsstaríi styrkt- arfélagsins. Það er aðilum til verð- ugs hróss og sóma. Að lokum má geta þess að vænt- anlega verður jólaföndur hafið í athvarfinu þegar jólablað Faxa kemur út og þangað er hollt að leita til að gera jólin að meiri og fegurri jólahátíð. J.T. ©ðka öííum uiÖSkipíauinum gtebiíegra {óía og faréceíbar á komanbi ári 1 m — T3 m \ TRÉ :.w “Vv TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR Iðavöllum 6 — Keflavík — Sími 3320 Óskum viðskiptavinum og starfsmönnum Netaverkstœði Suðurnesja Sími2470 394 FAXI

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.