Faxi - 01.12.1985, Page 84
'Ifrjusti Sigurlaugsson, formaður SjúIfsbjargar f Reykjavfk, flytur hér þakkir til Suðumesjadeildar
Sjálfsbjargar fyrir góðar móttökur og skemmtilega kvöldstund. Hann var þess mjög hvetjandi að
slíkir sameiginlegir skemmtifundiryrðu a.m.k. drlegur viðburður. Greinilegt er að Friðrik Magnús-
son form. Suðurnesjadeildarinnar yfirvegar málið jákvœtt.
Gítarstrengimir eru þandir til hins ítrasta og ,,nikkan“ er teigð og kramin. Tfausti œtlar líklega að
slá taktinn og Gústi að stjóma klappliðinu.
Sjálfsbjargar-
félagar
skemmta sér
Suðumesjadeild Sjálfsbjargar bauð Sjálfs-
björg í Reykjavík til sameiginlegs skemmti-
fundar í Safhaðarheimilinu í Innri-Njarðvíl<
föstudaginn 8. nóvember sl.
Samkoman hófst með sameiginlegu borð-
haldi. Boðið var upp á vinsæla kjúklingasteik
með öllu tilheyrandi og kaffi.
Farið var í spurningakeppni milli Suður-
nesjamanna og Reykvíkinga og báru þeir síð-
arnefndu sigurorð af Suðurnesjamönnum.
Keppninni stjórnaði Ölafur Eiríksson af
mikilli röggsemi. Mikið var sungið og dansað
dátt. Flestir tóku þátt í dansinum og skipti þá
ekld máli hvort setið var í hjólastól eða, ,tjútt-
að“ á tveimur jaínfljótum.
Flestir voru hreyfihamlaðir — mjög mis-
munandi á sig komnir, en gleðin og ánægjan
með þessa sameiginlegu ágætu kvöldstund
setti ánægjulegt mark sitt á flest andlitin, þótt
augljóst væri að margir höfðu orðið að líða
mikið, sumir jafnvel frá fæðingu. Hreyfi-
hamlað fólk og flestir þeir er á annan hátt hafa
skerta orku á einhvern hátt, fá færri tækifæri
til að njóta lífsins en þeir heilbrigðu. Það er
því ánægjulegt þegar svo vel tekst til eins og
að þessu sinni hjá Suðurnesjadeildinni, það
var bjart og hlýtt í hugum allra. Það fékk því
góðar undirtektir þegar 'IVausti Sigurlaugs-
son stakk upp á því, í þakl<arræðu er hann
flutti, að slíkir sameiginlegir fundir yrðu
a.m.k. einu sinni á ári. Hann þakkaði stjóm
Suðurnesjadeildarinnar fyrir frumkvæðið að
þessari ágætu kvöldstund.
Stjórn deildarinnar skipa: Friðrik Magnús-
son, formaður, Jón Stígsson, gjaldkeri, Guð-
munda Friðriksdóttir, ritari, Kristjana Ólafs-
dóttir, varaformaður, Valgerður Guðjónsdótt-
ir, meðstjórnandi.
Menn gerðu hœnsnunum góð skil með bros á vör.
Myndir J.T.
Hjólastóllinn er ekki lengur hindrun fyrir því að fólk fái sér snúning á
dansgólfinu og allir njóta þess að hittast á góðri stund og njóta tilver-
unnar.
396 FAXI