Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1989, Síða 7

Faxi - 01.05.1989, Síða 7
\'ord[jördshús (Svarta-pakklnísii)) var /hitt frá Háscndum til Kc[luvíkur cflir [kx)k) mikla 9. janúar 1799. I Kcjluvík stói) húsu) í um 100 ár á í’atnamótum Xon)[jön)sgötu og Hafnar- Sölu, jiur scm nú cr afgrciósluhús SHK. i'pp úr 1900 var húsit) /lutt í port áhulduhúss Ixcjarins og var hugmynd- in .xií íi<> varóvcila jxu). /in afjiví van) ckki ftvf fiw) hrundi í óvcóri og jxir mcó '’tir sutrci þcss öll. þeir rád á 45 fiskiskipum. En þá lét Kristján konungur III ræna þeim öllum og byrja með þeim konungs- útgenMna hér, um nes og víkur. - 20 árum síðar (1563) var afli konungs aukinn með öðru láni (þó kölluð væru makaskipti), þá er Páll Stígs- son höfuðsmaður tók beztu afla- jaröirnar af Skálholtsstól: Hvals- neshverfið á Miðnesi, „Ofriöar- staði“ (Jófríðar-) í HafnarftnM, og 12 aðrar jarðir þar á milli; svo og berney o.fl. En í staðinn lét hann janlir og kot í BorgarfinM — annan ránsleng Dana, og þó minnihlutann af jörðum Ogmundar biskups og Viðeyjarklausturs. Eftir þetta var þorskinum, sem aflaðist, allt frá Reykjanesi til Reykjavíkur, sópað vendilega í sjóð konungs, um tvær aldir og nær íjónlungi betur — alla konungsskipanna, landskuldum, sköttum og sektarfé. Sennilega hafa enskir kaupmenn siglt að jafnaði á Básenda mest alla 15. öldina og fram á 2. áratug 16. aldar, því að á þessu aldar tímabili höfðu þeir að langmestu leyti verzl- un alls Islands í sinni hendi. En eftir bardagann fyrrnefnda, hrakaði óð- um verzlun þeirra og yftrgangi hér á landi. Aö sama skapi færast þýzkir kaupmenn í aukana. En Dönum gengur seint róðurinn inn á hafnir einokunarinnar. Þrátt fyrir ftski- skiparánið eru Danir ekki komnir lengra en svo um miðja 16. öldina á einokunarferli sínum, að þeir sigla tveimur kaupskipum til íslands, en Þjóðverjar tuttugu. Eru um þetta bil miklar ráðagerðir hjá stjórn Dana, að steypa undan Þjóðverjum. Ein þeirra var sú og þó nokkru fyrr, um 1544, að konungur tæki af Þjóðverj- um Básendahöfn, og sendi þangaö skip árlega. Átti það að sækja ftsk konungs og brennistein úr námun- um á Reykjanesi, fara til Englands og selja þar fyrir gull og góðar vörur, klæði og konunglegar nauðsynjar. Konungur vill sigla, en byr hlýtur að ráöa. Árið 1548 vildi danskt skip sigla á Básendahöfn og verzla þar. En þýzkt skip var þar fyrir, meö fó- geta innanbonls og hrundu þeir Dönum frá verzluninni þar. Þá er einokun Dana byrjaði með fullum krafti hér á landi (1602), seg- ir J. Aðils í Einokunarsögunni (bls. 70-71), aö Þýzkir haft enn siglt á Básendahöfn. Þaö er því varla rétt, er segir í sömu bók (103) og í Skarðsáraannál, að árið 1640 halt ekki verið siglt á Básendahöfn í 50 ár. Hitt er sönnu nær, að Danir hefji einokun sína hér með því að afrækja höfn þessa í 38 ár. Og síðan byrja þeir verzlunina þar (1640) með því að yfirgefa Grindavík um næstu 24 árin. Eftir það var oftast siglt á þess- ar hafnir báðar, og oft fluttar vörur milli þeirra. Árið 1645 kom sigling á Básenda, fágætt á þeim árum og boðflenna sennilega. Þar var hollenzkt skip með íslenskum skipstjóra, Einari Þórðarsyni lrá Tjaldanesi. Verzlaöi hann þar eitthvað, og var oftar í för- um hér við land. Danir höfðu síðan tögl og hagldir á Básendum rúma hálfa aöra öld. BÁSENDAFLÓÐIÐ Árið 1799, í náttmyrkri 9. janúar og fárviðri af s.v., gekk á suður- og vesturströnd Islands víðlendara og stórtækara sjávarflóð en sögur fara af hér á landi. Flóðið og veðrið gerðu usla og tjón afarmikið, á skipum, húsum, gripum, vörum, túnum, görðum og mannvirkjum, mest frá Þjórsá og allt vestur um Snæfells- nes. Tnldist svo til, aö 187 bátar og skip hefðu skemmzt mjög mikið, og flest mölbrotnaö. Kirkjurnar fuku á Hvalsnesi og á Nesi við Seltjörn, hún mölbrotnaði. En í Kirkjuvogi og á Kálfatjöm biluðu kirkjumar. Breið, fremsti bærinn á Akranesi, eyðilagðist alveg, bæði húsin og túnið. í Staðarsveit urðu nokkrar jarðir óbyggilegar. Verzlunarhúsið fauk í Ólafsvík, og Búðakaupstaður skemmdist mikið. A Eyrarbakka braut flóðið vöruhús. Flutu úr því viöir og vörur upp að Flóagafli og víða um Breiðumýri. Sjór gekk þar í marga bæi, og á Bakkanum fórust 9 nautgripir, 63 hross og 58 kindur. — Seltjamarnes varö eyja í flóðinu, svo að ekki varö komizt þaðan til Reykjavíkur. Á Básendum tók þó út yfir allan þjófabálk. Þar drukknaði ein kona, og brotnaði öll byggingin. Margir ágætir höfundar hafa ritað um flóð þetta: M. St. (Minnisv.tíð., II, 106) J. Esp. (Árb. IX, 96), Þ. Th. (Andv. 29. ár. 33, Lýsing ísl. I, 28, Árferði 193), J. Aðils (Einok 269) og Br. J. (Árbók fornl.-fél. 1903, 40). Sá er þó höfuðgalli á frásögn þess- ara fróðu og mætu manna, að eng- inn hefur þekkt frumheimildina um eyðing Básenda, sem flóðið er þó alltaf kennt við. Hefur því viljað ruglast nokkuð frá réttu umsögn þeirra um þennan foma kaupstað. Nú eru beztu frumheimildir fundnar nýlega í Þjóðskjalasafninu (A. 44), þ.e. lýsing kaupmannsins sjálfs, með skýrslu sýslumanns og tilvaldra skoðunarmanna: Hákonar Vilhjálmssonar í Kirkjuvogi og Jóns Björnssonar (í Diddu?). Skýrslan er með eiginhandarund- irskriftum og ósködduöum innsigl- um. Er hún svo merkileg og fnxMeg, að stafrétt mætti setjast í vísindaritr en of löng (17 bls. fol.) og strembing ildum í sama safni. Hér er því myndin sýnd alþýöu, stytt nokkuð, og færð úr dönsku ,,dragtinni“ í íslenzku flíkumar. Og þar á eftir er sagt nokkuö frá síðasta kaupmanni á Básendum, eftir mörgum bréfum o.fl. góðum heim- ildum í sama safni. FRAMHALD í NÆSTA BLAÐI LEIÐRÉTTING I síðasta tölublaði var rangt farið með nöfn foreldra Jó- hanns Þ. Þórissonar sem var að útskrifast af vélstjóra- braut frá F.S. Foreldrar hans eru þau Ingibjörg Kristjáns- dóttir og Þórir Jóhannsson. FAXI 163

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.