Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1989, Blaðsíða 18

Faxi - 01.05.1989, Blaðsíða 18
V A SUÐURNESJUM Faxi heldur hér áfram að fjalla um skóla Suðurnesjamanna og verður að þessu sinni sagt ffá Sandgerðisskóla. Við höfum góðfúslega fengið leyfi hjá Lionsklúbbi Sandgerðis til að birta tvær greinar sem birtust í jólablaði klúbbsins á síðasta ári. Er sú fyrri eftir Pétur Brynjarsson en sú síðari eftir Guðjón Þ. Kristjánsson núverandi skólastjóra Grunnskóla Sandgerðis. Birtist sú fyrri í þessu blaði en sú síðari ásamt fleira efni um skólann kemur í næsta blaði. SKÓLAHALD í MIDNESHREPPI FRÁ 1884 Eins og ffam hefur komið, erum við saman komin hér til að minnast þess að þetta ár er í fimmtugasta skipti sem skólinn er settur í núver- andi húsakynnum. Það er ekki ætl- un mín í þessu stutta spjalli að rekja nákvæmlega sögu skólahalds í hreppnum, það verður að bíða enn um sinn. Formlegt skólahald má rekja lengra aftur en til ársins 1938, reyndar allt aftur til ársins 1884. Þá um veturinn var kennt á tveimur stöðum í hreppnum. Bömin sem bjuggu á suðumesinu söfnuðust að bæ sem heitir Nýlenda og þau sem áttu heima í Bæjarskershverfi og norðar sóttu skóla að Flankastöð- um. Á báðum þessum stöðum vom reisuleg húsakynni. Kennslutíminn var Qórir mánuðir, tveir mánuðir á hvomm stað. 1888 er kennt suðurfrá í húsi, eigi langt frá Nýlendu, sem hreppurinn hafði keypt nokkmm ámm áður. Gmnnur þessa húss stendur enn, skammt frá þjóðveginum. Ekki var húsið stórt, aðeins um 24 m2. Nú á dögum þykir okkur svo sjálf- sagt að gera þær kröfur til skóla- húsa og annarra híbýla, að þau haldi vatni og vindi, að mig langar til gamans að lesa úr grein eftir Ög- mund Sigurðsson, sem birtist í tímariti um uppeldis- og mennta- mál árið 1890. Ögmundur segir: „/ hverr/ skúr lekur þetta hús mest öllu, sem á það rignir; loptið heldur eigi vatn- inu, svo að bömin urðu að flytja sig til í herberginu, eptir því úr hvaða átt rigndi." (Ogseinna). . . ,,Skóla þennan vantaröll áhöld, þargetur eigi heitið að ne/nn bekkur sjé, að eins er þar ein borðskífa negld á þverkubba, semöllskelfurogtitrar, þegar bömin settust á hana, og svo var þó lítið um sœti, að eigi gátu 11 böm, sem voru ískólanum, setiðöll í einu f skriptartímanum; í h/num tímanumgátuþau aðeins troðiðsér niður. Eitt einasta borð var í skóla- stofunni, ekki þó eins og vanalegt skólaborð, heldur eins og kaffxborð í búri, við það gátu setið 4—5 böm; hin urðu að standa við hefilbekk, sem þar var (stofunni, meðan þau vom að skrifa." Á Flankastöðum vom húsakynni betri en þennan vetur vom þar 17 böm. Á þessum fyrstu áram veittu skólamir kennslu í Nýja-testament- inu, reikningi og lestri. Árið 1907 em Fræðslulögin sett og er þar lögboðin skólaskylda frá 10-14 ára aldri í 2-6 mánuði ár hvert. Sjálfsagt hefur það verið orðin brýn nauðsyn að byggt væri hér skólahús, enda varð sú raunin og um 1910 risu tveir myndarlegir skólar í hreppnum. Ánnar við Nýlendu og stendur enn, og hinn við Sandgerðistjörnina, en hann var Flankastaðir (Kristjánshús). 174 FAXI

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.