Faxi - 01.05.1989, Side 9
Vesturfararnir: Ólafur Unnsteinsson og ióhann. Ólaf-
ur sat þing W.A.V.A. meðan á heimsleikunum stóð, en
hann hefur ötullega unnið að framgangi íþrótta fyrir
eldra fólk hin siðari ór.
Hór hefur Jóhann tekið við verðlaunum sínum í lang-
stökkinu á Heimsleikjunum.
ÍÞRÓTTIR EKKI BARA
FYRIR UNGT FÓLK
A undanf'örnum árum hef'ur átt
sér stað bylting á s vicM tómstunda og
íþrérttamála. Hér áöur f'yrr voru
íþróttir, og þó sér í lagi keppnis-
íþróttir, einkaeign unga fölksins.
•’egar bestu árin voru aö baki, þá
voru hinir eldri litnir hornauga og
jafnvel gert aö þeim grín. íþrótta-
íréttamenn siigöu einatt um þá sem
nálguöust þrítugt - sko gamla
ntanninn, hann er ekki af baki dott-
inn - eða eitthvaö álíktt gáfulegt.
• dag æfa allir aldurshópar hvers
kyns íþróttir og þaö eru haldin stór-
mót um öll lönd. Og f'ólk finnur, að
þaö eflist aö þrótti og styrk og gleöin
sem er samfara æílngum og keppni
er ómælanleg. l>aö er í raun erlitt að
fullyröa nokkuö um, hvað olli þess-
um straumhvörfum, en líklegt má
telja þetta afleiðingu þess hlaupa-
æðis sem fór eins og eldur um sinu
um heiminn á áttunda áratugnum.
Hér á landi hefur þessi þróun komiö
íram á margan hátt. Allur almenn-
ingur hefur stóraukió íþróttaiökun
og tekin hefur veriö upp aldurs-
flokkakeppni í mörgum greinum
íþrótta. Og nú leggja eldri íþrótta-
menn land undir fót og taka þátt í
keppni í fjarlægum löndum.
JÓHANN JÓNSSON ÚR VÍÐI
Einn þessara íþróttamanna er Jó-
hann Jónsson í Garðinum. Hann
fékkst nokkuö viö íþróttir á unga
aldri og þegar hann eltist og var aö
þjálfa krakkana í Garóinum, þá lét
hann sig aldrei muna um aö sprikla
meö. Fyrir fjórum árum, þegar
hann var 66 ára, þá byrjaði Jói að
fikta viö að kasta kúlu heima á hlaöi
hjá sér og einnig var hann aö kasta
kringlu úti á túni. Hann fann þá
fljótt, að þessar æfingar veittu hon-
um nýjan styrk. Siöan þá er Jóhann
oróinn landsþekktur íþróttamaður
sem hefur náö árangri á heimsmæli-
kvaróa og hann varó um daginn
heimsmeistari í þrístökki í flokki
70-74 ára. Tíðindamaöur Faxa hitti
hann aö máli og við f'engum leyfi til
a(i segja lesendum blaðsins nánar
frá þessum viöburói.
FRÁ STÓRMÓTUM
. Fyrir alllöngu síðan var ákveðið að
•slendingar tækju þátt í 8. Heims-
leikjum öldunga í frjálsum íþróttum
sem haldnir skyldu í Eugene í Ore-
gonfylki Bandaríkjanna. t'egar til
kastanna kom uróu þátttakendurn-
>r aðeins tveir, Olafur Unnsteins-
son, frumkvööull íþrótta fyrir eldra
fólk, og síðan Jóhann Jónsson úr
Oarói. Þótti mönnum þetta víst
bæöi langt og dýrt feróalag. En Jó-
hann á marga að sem studdu hann
dyggilega til fararinnar. Sagöi hann
það hafa glatt sig mest, þegar vel
gekk í feróinni, að hann gæti endur-
goldið stuðningin með góðum ár-
angri.
NORÐURLANDAMÓT í
LARVIK
Fyrsta stórmótið sem Jóhann tók
þátt í í sumar var Noróurlandamót-
ið í Orvik í Noregi. Þessi keppni fór
fram um mánaðarmótin júní—júlí
og voru þátttakendur um 500 tals-
ins, þar af 12 íslendingar. Stóðu þeir
sig með mikilli prýði, sérstaklega
Jóhann sem keppti í 7 greinum og
setti met í þeim öllum. Besta grein
Jóhanns er þrístökk og varó hann
Noróurlandameistari í því, stökk
9,54 m. í langstökki varó hann ann-
ar með 4,32 m. Annar keppandi frá
Víði, Hrönn Eðvaldsdóttir, keppti
líka á mótinu og stóð sig vel.
MEISTARAMÓT
BANDARÍKJANNA.
Jóhann og Ólafur héldu til Kaup-
mannahafnar þann 14. júlí og slóg-
ust í för með dönsku og sænsku
keppendunum sem voru að fara á
heimsleikanna. Ákveðið hafði verið
að taka einnig þátt í meistaramóti
Bandaríkjanna sem halda átti í San
Diego í vikunni á undan leikjunum
í Eugene. Þama mættust um 1450
keppendur frá 27 löndum og var
hart barist um verðlaunasætin. Sem
fyrr stóð Jói sig vel. Nú vann hann
langstökkið með 4,25 m. og varó
annar í þrístökkinu með 9,45 m. Þá
setti hann nýtt íslandsmet í spjót-
kasti, kastaði 36,12 m. og varó
númer tvö.
HEIMSLEIKARNIR í EUGENE
Og þá var komið að sjálfu heims-
meistaramótinu. Það var stórkost-
legt. Keppendumir vom alls um
Ftmm þúsund talsins frá 57 þjóð-
löndum. Stemmingin var ólýsanleg
— vinskapurinn var í fyrirrúmi og
menn sögðu hvor öðmm til eftir
bestu getu. Og enn hamaði keppn-
in. Hér vom samankomir besta
þróttafólk heimsins í hinum ýmsu
flokkum og greinum. En ekki brást
Jóhann. Hann sigraði í þrístökki
(9,14 m.), varó 2. í langstökki (4,10
m.) og 3. í spjótkasti (37,52 m. -
nýtt met). Með þessum árangri
skipaði hann sér endanlega í flokk
þeirra bestu. Þetta var hápunktur-
inn á þróttaferlinum.
MAÐUR EIGNAST SVO GÓÐA
VINI
Eg spurói Jóhann, hvers vegna
hann væri að puða þetta. Ég fæ svo
mikla ánægju úr úr þessu. Það er
sama hvort ég er að æfa einn úti á
túni, eða að keppa með öðmm.
Gleðin og ánægjan sem fylgir þessu
er svo mikil — og svo eignast maður
svo góða vini og kunningja. Þessu til
sönnunar sýnir Jóhann mér bréf
sem hafði borist fyrr um daginn frá
Japan. Það var frá 75 ára gömlum
heimsmeistara sem vonaðist til að
sjá Jóhann á heimsleikjunum í
Finnlandi árið 1991.
Að lokum spurói ég Jóhann, hvað
hann vildi ráðleggja þeim sem vildu
byrja að æfa á næstunni. Aðalatriðið
er að byrja - að gefast ekki upp,
þótt fólki finnist það ekki hafa þrótt.
Með æfingunni kemur styrkurinn
og afiið. Flestir geta verið með.
Við þökkum kærlega fyrir spjallið
og óskum Jóhanni enn og aftur til
hamingju með heimsmeistaratitil-
inn.
FAXI 165