Faxi

Árgangur

Faxi - 01.05.1989, Síða 11

Faxi - 01.05.1989, Síða 11
var höggvinn í nokkuð jöfn stykki var hægt að fara í jakahlaup áður en klakastykkin voru dregin inn í geymslu þar sem doppuklæddir karlarnir röðuðu klakastykkjunum i stalla til að fylla geymsluna upp í loft. Þessi ís var geymdur til hausts- ins því þá fékkst síldin í reknetin og var hún pönnuð og fryst til beitu. Eflaust hefur lítið farið fyrir klak- anum okkar í Aðalgöturæsinu eftir sumarlanga daga þó ætlunin hafi verið að verða sér úti um síld til frystingar í beitu á „stubb". Stubbur var línustubbur sem góðviljaðir skipstjórar tóku með í róður og fékk eigandi hans þann afla sem á hann kom. Algengt var að drengir fengu að fara í róður í vertíðarlok og iðulega með bátunum út á legu eftir upp- skipun. í kringum þetta var snúist og um samið við sjómennina, sem við höfðum góð samskipti við. bannig kynntumst við þeirra hög- um, sem áttu eftir að verða hlut- skipti margs unglingsins. Daglegt amstur bátttaka bama og unglinga í dag- legu amstri þessa tíma var marg- þætt og nokkrar kröfur gerðar til þeirra í að létta undir afkomu heimilishaldsins. Sækja varð allt vatn í einn af staðarbrunnunum og þegar konur höfðu lokið við að þvo þvott á þess tíma vísu var farið með hann niður að brunni á handvagni eða sleða til skolunar. Til þess þurfti mikið vatn og var því mikið pumpað. Allar kartöflur og rófur voru ræktaðar af heimilisfólki og var þátttaka bama og unglinga þar þó nokkur. Að reita arfa í marga daga þótti afar leiðinlegt. Farið var á reka til að tína sprek til upp- kveikju. Færa þurfti mat og kaffi í aðgerðar- eða beitningarskúrana þar sem feður unnu og við bömin sáum varla annars staðar alla vertíð- ina. Einnig þurfti að færa sjómönn- unum, þegar þeir komu úr róðri, kaffi á flösku sem sett var í sokk til aö halda því volgu. Að verða maður með mönnum Algengt var að veturinn eftir ferm- ingu væru tveir unglingar ráðnir við landróðrabát upp á hálfan hlut hvor á meðan þeir vom að ,,harðna“, því vinnutími var langur og ná þurfti réttum handtökum og vinnuhraða, sem var mikill. í þessu umhverfi fór fram alvöru undirbúningur með fullri ábyrgð á framleiðslunni og þátttöku í félagslegum umræðum og daglegri framfærslu heimilanna. Ráðning upp á heilan hlut var við- urkenning á því að unglingurinn stóð hinum fuilorðna jafnfætis og Hilmar Jónsson Af menningamálum í Keflavík Menningarmál eru ekki hátt skrifuð í Keflavík hvorki af blöð- um né pólitíkusum. C)Ðru máli gildir um bjórbúllur. beim fjölgar og þær fá umfjöllun. Byggðasafnið: Bjarnfríður Sig- urðardóttir gaf sem kunnugt er hús sitt og lóð fyrir byggðasafn á Vatnsnesi. Fyrir dugnaö þriggja manna, Helga S. Jónssonar, Olafs borsteinssonar og Guðleifs Sigur- jónssonar, er þar risið furðulega merkilegt safn muna og mynda frá Keflavík og Njarðvík. Aðsókn hefur verið góö en húsið fyrir löngu alltof þröngt. Saga Keflavíkur: Ritun sögu Keflavíkur hefur lengi verið á dag- skrá en afrakstur enginn af þeirri umræðu. Engum skal um kennt en nú virðist málið vera að leysast. i fyrra haust var kjörin fimm manna sögunefnd, sem lét verða sitt fyrsta verkefni aö gefa út Minningar Mörtu Valgerðar Jóns- dóttur í samvinnu við ættfræði- stofnun borsteins Jónssonar. bættir þessir birtust í Faxa og nutu mikilla vinsælda. Jafnframt var ákveöið að greinum Mörtu fylgdi niðjatal til dagsins í dag. Ráðgert er aö verk þetta komi í þremur bindum og ven)i til sölu og og dreifingar í haust. bá hefur Skúli Magnússon unnið hjá nefndinni í sumar við flokkun og skráningu efnis. Ráðinn hefur verið ritstjóri, Bjarni Gðmarsson, ungur og efnilegur sagnfræöing- ur, sem skal hafa yfirumsjón með verkinu. I ljós kom þegar sögu- nefndin kallaði sérfróða menn fyrir til ráða og leiðbeininga að verulegur þröskuldur verður að- stöðuleysið fyrir fræðimenn og skortur á héraðsskjalasafni á svæðinu. Safnahús: F'rá 1980 hefur stjórn bæjar- og héraðsbókasafnsins í Keflavík óskað eftir nýbyggingu eða safnahúsi. Litlar sem engar undirtektir hafa orðið við það mál, þar til í vetur að bæjarstjórn veitti sjö milljónir til viðbyggingar við núverandi bókasafn á Mána- götu 7. En byggingarfulltrúi Keflavíkur, Sveinn Númi, hafði gert skemmtilega tillögu þar um, sem fékk hljómgrunn hjá yfir- völdum. Þegar betur var aðgáð komu fram annmarkar, meðal annars benti nágranni á aö stækk- un safnsins á Mánagötunni mundi hafa neikvæð áhrif á sölu- gildi síns húss. Sá sem þetta skrif- ar lagði þá til að þessi leið yrði ekki farin heldur tekinn upp þráðurinn frá 1980 um safna- og ráðhússbyggingu fyrir enda skrúðgarðsins við Tjarnargötu. Hefur bæjarráðið falið Valdimar Harðarsyni arkitekt að gera tillög- ur að slíkri byggingu, sem hægt yröi að reisa í áföngum og mundi leysa bráðan vanda bóka- og skjalasafns. Staðsetning þessa fyrirhugaða safna- og ráðhúss er mjög góð og mundi verða skrúð- garðinum ómetanlegt skjól í norð- anáttinni. jók það sjálfsvitund hans að vera talinn maður með mönnum. Hér er dæmi eins þáttar sem hafði mótandi áhrif á unglinginn og tók við af bemskuleikjum sbr. ,,Uggi h.f.“. Sumarvinna kvenna og barna (8-12 ára) Ein var sú atvinnugrein sem horf- in er vegna breyttra atvinnuhátta þar sem böm og fullorðnir unnu saman að framleiðslunni. Vertíðar- fiskur var allur saltaður og á vorin var hann vaskaður og síðan yfir sumartímann fluttur eftir ástæðum uppá ,,reií/“ þarsem þurrfiskhúsin stóðu í heiðarbrúninni. Börn og konur með hvítþvegnar hveitipoka- svuntur og höfuðklúta í ofanskom- um stígvélum eða heimatilbúnum reitarskóm búnum til úr bíldekki og seglastriga, mættu til fiskbreiðslu og samantektar, þegar vimplað (flaggað) var hjá Skuld og Ráöa- geröi. Eða hvað þær nú hétu allar löngu horfnu þurrfiskstöövamar. Skólaganga Á þeim árum sem rætt er um hér aö framan var skólaskylda frá 7 ára aldri, (sem lögleidd var árið 1936) og var mun styttri en er í dag. Voru því samskipti bama og unglinga mun meiri bæði á heimilum og vinnustöðum. Litlar sem engar breytingar urðu á kennslu. Kennslubækurnar gengu frá eldri systkinum til þeirra yngri og leið skólagangan án teljandi árekstra. Blikur vom þó á lofti í skólamálum. Eins og áður er komið fram vom tvær kennslustofur í húsi verkalýðs- félagsins og var þar rekinn kvöld- skóli fyrir unglinga, en þeir unnu yfirleitt með námi. Sundkennsla, sem var ekki skylda, fór fram á sumrin í sjónum við sérstakar aðstæður. Fátítt var að unglingar fæm í menntaskóla, en nokkuð í verslun- arskóla og algengt á mótomámskeið og í pungapróf. Ekki var mikið um að farið væri í Stýrimannaskólann eða Vélstjóraskólann. Sýndi sig þá hvað í mönnum bjó, þegar vilji var til náms, jafnvel þó ódælir hefðu verið í bamaskóla. Eftirmáli í tillögum að ritgerðarverkefni nr. 4 segir: ,,Félagsmótun. Rannsóknir hafa sýnt /ram d ad félagsmótun barna er tengd því félagslega umhver/i sem þau vaxa upp í.“ Þessi texti réð því að ég valdi þetta viðfangsefni og hef reynt að segja í stuttu máli frá liðnum dögum. Þetta em staðbundnar frásagnir frá j: eim tíma sem fólk er að flytjast lil þettbýliskjamanna (hér Kefla- víkur) og býr við vosbúð, þrældóm og fjárhagslegt óöryggi. Lítil kynni höfðu unglingar af öðm en útvegi og því sem um hann snérist. Fáar litiar verslanir þar sem eigendur vom sjálfir við afgreiðslu og bakarí. Frosið kjöt var selt í ís- húsinu einu sinni eða tvisvar í viku. Dráttarbraut og vélsmiðja risu upp á þessum ámm. Hér var lengi vel einn læknir og presturinn bjó í nær- liggjandi þorpi, sýslumaður hafði aðsetur í Hafnarfirði og hér var barnaskóli með Ijómm kennslu- stofum. Margt fleira mætti tína til, en þetta nægir til að sýna hverra kosta var völ. Það var fjarræn hugsun þorra unglinga annað en að duga sem best í þeirri lífsbaráttu sem bemskuleik- irnir mótuðu. Sturlaugur Björnsson. Heimildir Döra Bjarnason: Fræðilegur inngangur. Félagsnnian. Olafur Ragnar Orímsson og l>orbjöm Bmddason: íslenska þjóöfélagið. Fé- lagsgeröogstjómkerfi. Reykjavík, 1977. Félagsvísindadeild H.í. FAXI 167

x

Faxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.