Faxi

Volume

Faxi - 01.05.1989, Page 15

Faxi - 01.05.1989, Page 15
5. tölublað 49. Útgefandi: Málfundafélagið Faxi, Keflavík. Afgreiðsla: Hafnargötu 79, sími 11114. Blaðstjórn: Helgi Hólm, ritstjóri, Kristján A. Jónsson, aðst.ritstj., Guðfinnur Sigurvinsson, Hilmar Pétursson og Birgir Guðnason. Filmu- og plötugerð: Myndróf. Prentun: Prentstofa G. Benediktssonar. árgangur Suðumesin þurfa meiri kynningu. Sumarið 1989 er að kveðja. Hér á Suð-vesturhorninu hefur það víst varla uppfyllt þær vonir sem á vorin kvikna í brjóstum okkar. Um allt land var reyndar kalt framan af, en síðan var hið besta veður víða um land svo vikum skipti. Hið góða veður á Norður- og Austurlandi stuðlaði að auknum ferðalögum landans til þessarra landshluta og er það vel. Ferðalög eru með bestu tómstundum fólks og fátt er betra en að kynnast sínu eigin landi. Þetta leiðir hugann að ferðalögum fólks til Suðurnesja og kemur þá fljótt í ljós, að aðstaða fyrir ferðafólk er hér víða mjög bág- borin. Það er viðurkennd staðreynd, að ferðaþjónusta er víða mikilvæg atvinnugrein. Hér má nefna, að íbúar Austur- ríkis afla um helmings tekna sinna við ferðaþjónustuna. Hér á landi hefur þessarri atvinnugrein smátt og smátt vaxið fiskur um hrygg og er nú svo komið, að hún færir þjóðarbúinu verulegar tekjur. Á Islandi hefur sérhver landshluti ákveðin séreinkenni. Þótt það sé ekki á allra vitorði, þá eru hér á Suðurnesjum margir gullfallegir staðir sem vert er að skoða og dveljast á. Ef tækist að kynna þessa staði betur fy rir löndum okkar og jafnframt skapabetri aðstöðu fyrir ferðamenn, þá væri vafalítið hægt að auka ferðamannastraum til Suðurnesj- anna svo um munaði. Vonandi gefa menn þessu gaum á næstu árum. Stöndum saman í baráttunni við eiturlyfin Fyrir nokkru voru stofnð samtökin VÍMULAUS ÆSKA. Markmið samtakanna er m.a. að aðstoða ungt fólk sem orðið hefur vímuefnum að bráð. Einnig að reyna að hamla á móti hinni sívaxandi notkun á hinum ýmsu eiturefnum. FAXI vill hvetja alla, jafnt foreldra sem aðra að leggja sitt af mörkum í þeirri baráttu. Það er fátt ömurlegra en á sjá ungt og efnilegt fólk verða eiturefnunum að bráð. Því mið- ur er slíkt orðið algengt. Foreldrar ættu að gefa þessu máli rækilegan gaum og ræða það við börn sín. Hér er við þann vágest að etja sem eyðileggur líf þeirra sem ánetjast hon- um. HH. 40 ÁRA AFMÆLI KEFLAVÍKUR „DEBUr TONLEIKAR HLÍFAR KÁRADÓTTUR l’ann 19. april 1989 hélt Hlíf Káradóttir ,,debut“ tónleika á vegum Tónlistarfélags Kefiavík- ur og nágrennis. Tónleikarnir voru haldnir í Félagsbíó, og í til- elni 40 ára afmælis Kefiavikur- bæjar, bauð Tónlistarfélagið óll- urn bæjarbúum frítt á tónleik- ana. Skömm var að, hve fáir létu eftir sér að mæta og vil ég segja við þa,' sem ekki voru þarna, að þeir ættu að not betur svona tækifæri til þess að fá tilbreyt- ingu í lífið. Hlíf stundar nám við Tönlist- arskólann í Reykjavík, lauk burtfararpróli vorið 1988 og stefnir á einsöngvarapróf. Hún hefur einnig verið mjög dugleg að sækja námskeið. Efnisskrá tónleikanna var fjöl- breytt og mjög skemmtileg áheyrnar. Tónleikarnir hófust með ,,antik-aríu“, gömlu söng- lagi, og söng Hlíf það sérlega vel. Næst komu þrjú lög eftir Schumann og þá voru íslensk lög, tvö eftir Sigvalda Kaldalóns og tvö eftir Þórarin Guðmunds- son. Eftir hlé söng Hlíf þrjú lög eftir Richard Strauss og einnig þrjú lög eftir William Walton. Tónleikunum lauk svo með aríu úróperunni ,,TheConsul“, Kon- súllinn, eftir Menotti. Þessi aría kom skemmtilega á óvart, því hún er mjög ólík þeim aríum sem söngvarar venjulega velja sér. Hlíf naut sín mjög vel í arí- unni, kunni hana vel og gat leyft sér að túlka mjög frjálst. Iáigin eftir Walton eru heldur ekki mikið sungin og þess vegna var gaman að sjá og heyra Hlíf njóta sín til fullnustu. Hlíf fór vel frá þessum tónleik- um, mjög vel. Ilún var glæsileg á sviðinu og virkaði mjög örugg. Þó fannst mér eitthvað vera að, og trúi ég að það hafi vantað meiri stuðning eða hvatningu frá píanóleikaranum. Það er skrítið að ég skuli segja þetta, því undirleikari Hlífar var sjálf I^ira Rafnsdóttir. Hún er þaulreyndur píanóleikari og hefur spilað með mörgum lista- mönnum, m.a. Kristjáni Jó- hannssyni á tónleikum í Há- skólabíói. En ég tel mig þurfa að minnast á þetta, því ef Láru hefði liðið betur, þá hefði hún getað látið Hlíf líða betur líka. Það var enginn svikinn á því að hlusta á þessa tónleika. Það verður gaman að fylgjast með frama Hlífar sem söngkonu, og óska ég henni alls hins besta í námi og starfi. Gróa FAXI 171

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.