Faxi

Volume

Faxi - 01.05.1989, Page 27

Faxi - 01.05.1989, Page 27
Maríu, er leiö á kvöldið, var SVFÍ gert viövart. Hafði félagiö fyrst samband við verstöövar á Suöur- nesjum og bað hafnarverði aö svip- ast um eftir bátnum. Jafnframt var báturinn kallaður upp í gegnum tal- stöð. Með veðurfregnum klukkan eitt eftir miðnætti aðfaranótt 2. febrúar, var auglýst eftir bátnum í útvarpi. Um svipað leyti hófst und- irbúningur að leit. Hófst hún strax við birtingu að morgni föstudags- ins, 2. febrúar. Leituöu björgunar- sveitir úr Grindavík, Höfnum, Sand- gerði, Garði og Keflavík. Að minnsta kosti var farið tvisvar yf ir allt svæðið frá Garðskaga, suður að Reykja- nesi, allt austur fyrir Grindavík. Flugvél Landhelgisgæslunnar og vél af Keflavíkurflugvelli hófu leit ásamt lítilli flugvél frá Suðurflugi. Leituðu stærri vélarnar dýpra, en hin litla meðfram ströndinni. Auk þess leituðu tólf bátar, en síöar bættust þrettán við. Voru þeir frá Grindavík, Sandgerði og Keflavík. Einnig leituðu rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson og varðskipið Ægir, sem stjórnaði leitinni á sjó. Var leitarsvæðið afmarkað í stefnu suðvestur frá Skaga að Reykjanesi, allt að tuttugu og fjórum gráðum í vestur. Um klukkan 15.50 síðdegis, 2. febrúar, fann Már GK, óuppblásinn gúmíbát á floti um sjö til átta sjó- mílur austur af Eldeyjarboða. Var báturinn ómerktur. Þá fann gæslu- flugvélin ýmislegt rekald er var dreiftásjónum. Var þaðásvipuðum slóðum. Var báturinn og brakið sent til Reykjavíkur, síðdegis sama dag, til rannsóknar. Kom þá í Ijós er númer gúmibátsins var athugað, að hann var af Maríu. Þótti fullvíst að María hefði farist með skjótum hætti, sennilega skammt norður af Eldeyjarboða, einhvern tíma á sjötta tímanum til klukkan átta um kvöldið er báturinn ætlaði aö hafa samband viö v.b. Muninn. Trúlegt er að ólag hafi fært bátinn í kaf, svipað og gekk yfir Muninn. Ef til vill hefur bátsverjum á Maríu aðeins gefist augnabliks tóm til að losa björgun- arbátinn úr kassanum, annars hefði hann tæplega fundist á reki, daginn eftir. Við athugun á björgunarbátn- um kom sfðar fram að hann opnað- ist eölilega, var óskemmdur og lif- lína hans var óskemmd. En skips- verjar náðu hins vegar aldrei að kippa i hana. Óvíst er líka hvort þeim sjálfum tókst að koma þátnum í sjóinn, þó þeir næðu að losa hann. Hann hefur þá flotiö upp er þátnum hvolfdi. En einmitt þau sekúnduþrot er bátskistan var opnuð og þangað til þeir ætluðu að henda bátnum [ sjóinn skiptu á milli lífs þeirra og dauða. Enda veður og sjólag slikt að engu mátti skeika, hvert handtak skipti máli. Ýmis atvik á sjónum, ekki sist á neyöarstundu velta á sekúndubrotum, sem sjómönnum í lífsháska finnst heil eilífð og skynja jafnvel ekki i hamförum, sem skipta sköpum i lífi þeirra. Það minnir óneitanlega á orð þjóðskáldsins í lofsöngnum alkunna, að „hver dag- ur sé þúsund ár, og þúsund ár dag- ur ei meir“. Með Maríu fórust fjórir menn Enginn þeirra var búsettur á Suð- urnesjum. Þeir hétu: 1. Sævar Ingimarsson, skip- stjóri. Þrítugur. Kvæntur. Lét eftir sig tvö börn. Bjó í Reykjavik. 2. Halldór Bjarnason, stýrimað- ur. 27 ára. Kvæntur. Lét eftir sig þrjú börn. Bjó i Hafnarfirði. 3. Gunnar Guðjónsson, vél- stjóri. 23 ára. Kvæntur. Lét eftir sig þrjú börn. Bjó í Kópavogi. 4. Gunnar Ingason, matsveinn. Þrjátíu og tveggja ára. Kvæntur. Átti tvö börn af fyrra hjónabandi. Bjó í Kópavogi. Þeir Gunnar og Sævar voru mágar. Skólavörur í miklu úrvali Skipulagðri leit að Mariu var hætt laugardaginn 3. febrúar, er sýnt þótti að gúmíbáturinn væri af henni. Minningarathöfn um hina látnu fór fram í Dómkirkjunni í Reykjavík, laugardaginn 24. febrúar. Fljótlega eftir slysið hófst fjár- söfnun til styrktar ættingjum hinna látnu. Fimmtudaginn 22. febrúar höfðu alls safnast 668.500 krónur. Mest barst til Morgunblaðsins 298.500 krónur. í söfnunarnefnd voru starfandi þrír prestar í Reykja- vík og Hafnarfirði. Skömmu eftir 20 febrúar var ákveðiö að sameina inn- komið fé söfnun vegna Sjöstjörnu- slyssins, sem varð 11. febrúar. Vélbáturinn María KE 84 var smíðuð úr eik og furu í Bátalóni í Hafnarfirði árið 1972. Báturinn var í eigu hlutafélagsins Miðness í Sand- gerði, en skrásettur i Keflavík. Maria var 16,52 metrar aö lengd, meö 240 hestafla Caterpillar-vél. Þess má að lokum geta, að Jónas Fransson, skipstjóri á v.b. Munin, sagði i blaðaviðtali, að þetta hefði veriö eitt versta veður er hann hefði lent í þau tuttugu ár er hann hafði þá stundað sjó. (Mbl. 3. febr.: „Sandgerölsbáts saknaö meö 4ra manna áhöfn". Tímlnn 3. febr.: „Báts meö 4 mönn- um saknaö". Mbl. 4. febr.: „Fjórir fórust meó Maríu KE“. Tíminn 21. og Mbl. 24. febr.: Stuttar fréttir um minningarathöfn. Mbl. 23. febr.: „Sjóslysasofnun“. Stutt frétt. Mbl. 24. febr.: „Minningargreinar um fjórmenningana. Tímaritló Veöráttan. Mánaóarlegt yflrlit frá Veóurstofu yflr veóurfar. Janúar—febrúar. Bls. 1, 9—10. fslenskt sjómannaalmanak 1973. Sveinn Sœmundsson: Guömundur sklpherra Kœrnested. II. bindl. Bls. 44—45. Útg. i Rvík 1985). 'fáókabúb /^eflavíkur - OAGLEGA í LEIÐINNI - FYRIR HUSIÐ NORDSJÖ -málningavörur FYRIR BÍLINN ■bilalökk Blöndum alla liti og setjum á úöabrúsa ef óskaö er. Útvegum varahluti í allar geröir bíla. búðin Grófinni 8 - Simi 14670 Opiö 8—18 — laugardaga 9—12 FAXI 183

x

Faxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.