Straumar - 01.10.1927, Síða 11
S T R A II M A R
153
Efnið verður skoðað frá sálfræðilegu og heimspekilegu
sjónarmiði, þótt það sé í sjálfu sér guðfræðilegs eðlis.
Megintilraunin verður sú, að sýna fram á, að út frá
vissum gefnum forsendum verði ýmsar afleiðingar óum-
flýjanlegar frá sálfræðilegu sjónarmiði.
í sem fæstum orðum má segja, að fyrirlestrarnir séu
sálfræðileg samanburðar-rannsókn á frjálslyndis- og
íhaldsskoðunum innan guðfræðinnar.
Fyrirlestrarnir verða 20 talsins. Efnið verður rætt
bæði frá sjónarmiði íháldsstefnunnar og frjálslyndisins.
Eiga því tveir og tveir fyrirlestrar saman, og mvnda
hverjir tveir út af fyrir sig eining.
Umræðuefnin, sem valin hafa verið, eru þessi: 1.
Trúarbrögð, 2. maðurinn, B. heimurinn, 4. Guð, 5. synd og
dygð, 6. sáluhjálpin, 7. opinberunin, 8. Jesús, 9. kirkjan,
10. niðurlagsorð.
I „Kringsjánni“ er skýrt frá aðalefni fyrstu erind-
anna. Vegna þrengsla verður að þessu sinni eigi hægt að
skýra frekar frá erindum prófessorsins. í næsta hefti
birtist grein eftir hann um guðfræðingafundinn í Prag.
„Straumar“ bjóða prófessor Auer velkominn og
vænta þess, að koma hans megi efla víðsýni landsmanna.
Krin^sjá.
Fyrirlestrar próí. Auer. Eins og getið er um annarsstaðar í
þessu hefti, dvelur amerískur próf. hér og hefir í hyggju að
flytja 20 erindi um samanburðarguðfræði. Fer hér á eftir stutt-
ur útdráttur úr fjórum fyrstu erindunum.
1. fyrirlestur. Trúarbrögð (skoðanir íhaldsstefnunnar),
Trúarreynslan er grundvölluð á því, að viss atriði séu viðurkend
sönn. Sannleikurinn á upptök sín hjá Guði, en ekki hjá mann-
inum. Menn skilja ekki sannleikann, nema guðleg opinberun
fari á undan. — Hvernig getum vér sagt um, hvort opinberun
sé áreiðanleg? Fyrir þá sannreynd, að hún kemur ekki i bág við
Guðs opinberu sannindi í heilagri ritningu og í hinum viður-
kendu trúarjátningum kirkjunnar. Sum atriði í opinberun Guðs,