Austurstræti - 27.07.1938, Side 3
AUSTURSTRÆTI
ÚR ÖLLUM ÁTTUM III:
Einkennilegasti þjóðflokkur heimsins.
Framh.
\ UK gamla testamentisins
er til önnur bók, sem segir
frá þessum atburðum löngu lið-
inna tíma. Það er hið Mexi-
kanska fornsagna- og helgirit,
sem nefnist „Popol Vuh“ (bók
bókanna). Þessi bók hefir að
geyma mikinn fjölda af sögum
og sögnum frá fyrstu tímum
landsins. Hún var þýdd á lat-
ínu árið 1680 af spönskum
presti og um 100 árum áður
mun hún hafa verið skrifuð
upp á aðgengilegt Indíánamál
en upprunalega mun hún hafa
geymst um ótölulegar aldir á
æfagömlu Mexikönsku fornald-
armáli.
I „Popol Vuh“ er meðal ann-
ars sagt frá sköpun heimsins,
sem minnir mjög á sköpunar-
sögu gamla testamentisins. Þar
er sagt að fyrst var heimurinn
skapaður og því næst stjörn-
urnar. Ljóssins faðir skapaði
svo fjóra höfuðvini eða anda
jarðarinnar, þeir voru ekki í
mannlegri mynd, heldur dýr
eða jurtir. — Andlit jarðarinnar
sást ekki og friður hvíldi yfir
himni og hafi, en það er auðn
og myrkur. Þá sagði skaparinn:
„Verði ljós“. „og út úr myrkr-
inu komu fyrst fjöllin og svo
öll jörðin. Og síðan komu menn-
irnir. I fyrstu gaf skaparinn
eða faðirinn mikli börnum sín-
um tvenskonar ávexti, hvíta og
svarta. Þá hvítu máttu þau
borða, en ekki þá svörtu, nema
með leyfi hans. Höggormurinn
freistaði svo tveggja þeirra svo
þau borðuðu svartan ávöxt og
yfir því varð hinn mikli faðir
mjög reiður. En honum þótti of
vænt um börn sín til að bölva
þeim svo hann bölvaði jörðinni,
sem þau áttu að búa á“. — 1
sögunnar um syndaflóðið, löngu
síðar, er einnig margt líkt í
þessu mexikanska helgiriti og í
gamla testamentinu. Meðai ann-
ars er nafnið Nói á Mexikönsku
Nohua.
67