Austurstræti - 27.07.1938, Page 15
AUSTURSTRÆfl
FÓLKIÐ í BORGINNI I.
Ungu stúlkurnar.
Nú er útrunninn sá tími sem
ungu stúlkurnar voru til um-
ræðu. Og þó nokkur fleiri bréf
hafi borist, verða þau ekki birt
að svo stöddu, enda sum þeirra
þannig, að þau eru betur geymd
í ruslakörfunni. — Að undan-
teknu einu bréfi, sem birtist hér
á eftir virðast dómarnir um þær
nokkuð svipaðir, að þær séu
frjálsmannlegar en nokkuð tild-
ursgjarnar, glæsilegar, en dá-
lítið kærulausar, — sja'fstæð-
ari og framgjarnari en mæður
þeirra, en nokkuð hispurslausari
eða jafnvel óheflaðri í tali og
látbragði. — En yfir höfuð þó
ákaflega eftirsóknarverðar, —
ef ekki sem eiginkonur og hús-
mæður, þá í það minsta sem fé-
lagar og starfssystur.
Eina bréfið, sem gengur á
andi augu og þekki hana sam-
stundis og ég sé að það eru fleiri
þarna sem þekkja hana, því
einn þeirra hrópar:
Framh.
móti þessum dómi er eítirfar-
andi, sem sjálfsagt er að birta,
þó fæstir munu vera því sam-
mála:
VI.
Unga stúlkan er glysgjörn,
mentunarlaus, illa uppalin
og lauslát.
Ég er búinn að fylgjast með
þremur kynslóðum og ég verð
að segja ,að á engu sannast bet-
ur gamla orðtækið: Heimur
versnandi fer. Mér ofbýður blátt
áfram öll sú spilling, sem þessi
síðasta og versta kynslóð er að
sökkva sér í. Og út yfir takur
með ungu stúlkurnar. Strákarn-
ir hafa alla jafnan verið slæmir.
Þessi nýja kvenkynslóð er blátt
áfram hryllileg, andlitin mökuð
í málningu, sljóv augu með blá-
um skuggum af næturvökum,
víndrykkju, reykingum og alls-
konar slarki. — Guð hjálpi
þeim, sem voga að gera þessar
lauslátu tildursdrósir að mæðr-
um barna sinna. — Og uppeldi
þeirra og mentun er að sama
skapi. — I fám orðum: Meiri-
hlutinn af ungu reykvísku stúlk-
unum þyrfti að setja á ein-
79