Austurstræti - 27.07.1938, Page 20

Austurstræti - 27.07.1938, Page 20
AUSTURSTRÆTI Æfintýrið í eyðimörkinni. Eftir Duncan Cross. Framh. í þessum svifum riðu þau upp á hæðarbrún eina, þar snéru þau sér við í söðlunum og litu til baka. — Langt í fjarska sáu þau fjandamanna flokkinn þeysa niður stóran sandöldu- hrygg. „Þeir eru að minsta kostí 15 ef ekki fleiri“, sagði Kingston. I það minsta eru þeir alt of margir til að verjast þeim. Eina vonin er að geta flúið frá þeim. — — En hvað er orðið af Abdullha? — Hæ, — þarna er hann“. Hinn varasami Abdullha og sonur hans, sem með var í för- inni, höfðu skriðið ofan í djúpa dæld og biðu þar skjálfandi eftir húsbónda sínum og stúlk- unni. — Arabamir gátu ekki séð þá þarna og það varð til þess að Kingston flaug ráð í hug. ,,Á ég að fylgjast með ykkur, herra?“ spurði Abdullha. „Já“, svarði Kingston. Því- næst snéri hann sér að syni 84 hans, 16 ára fjörlegum strák og sagði: „Reiðmennirnir, sem koma á eftir okkur eru hættu- legir óvinir. Við ríðum nú í norður, en þú liggur hjer kyr, án þess þeir komi auga á þig, en um leið og þeir eru farnir framhjá þér, ríður þú sem á- kafast til Argeh og til her- manna og löggæslustöðvarinn- ar þar. — Fáðu yfirforingjan- um þetta“. Hann skrifaði í flýti nokkrar línur á pappírsmiða: „Eltur af 20 Beduinerum. — Hjálp!“ Kingston. „Já, herra, svaraði pilturinn. „Mig ríða eins og fjandinn. Mig eftirskilja úlfaldafarangur. Hann vera altof seinn“, hélt hann áfram á hrognamáli sínu. „Ágætt svaraði Kingston, svo knúði hann úlfalda ungu stúlk- unnar áfram og þau þeystu á- fram í norðurátt. Þegar fjandmennirnir á hæl- um þeirra sáu að þau breyttu um stefnu, snéru þeir einnig reiðskjótum sínum \ ið og virtust

x

Austurstræti

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Austurstræti
https://timarit.is/publication/681

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.