17. júní - 01.07.1925, Blaðsíða 5
17. JUNÍ
21
Sjóbjörgunarstöðvar við strendur íslands.
Svar frá Fiskifjelagi Islands.
✓
Ioktóberhefti „17. j ú ní “ beinið
þjer ýmsum fyrirspurnum til Fiski-
fjelags íslands viðvíkjandi vörnum gegn
mannskaða á sjó við strendur íslands.
Það, sem mjer finst einkennilegast
við þessa áskorun yðar, er það, að
yður virðist ókunnugt um, að nokkuð
hafi verið hugsað eða gert á íslandi í
þessu vandamáli, og að þjer sjeuð
þarna fyrstur manna til þess að opna
augu þjóðarinnar fyrir þessu nauð-
synjamáli. En frá því fyrsta að Fiski-
fjelag íslands var stofnað, hefir það
altaf svo að segja árlega haft mál þetta
til meðferðar, þó að framkæmdirnar
sjeu ekki meiri en orðnar eru. Skal
jeg í þessu sambandi benda yður á
nókkrar greinar í tímariti fjelagsins
„ÆGIR“:
í 1. árg. bls. 97,
5. » M 127,
6. „ „ 92.
7. »» „ 14,
9. ♦» n 45, 101,
10. n 179, 184,
11. »> n 43, 133,
14. >» » 76, 106, 130, 153
o. s. frav.
Auk þess er hinn ágæti fyrirlestur
Guðm. Björnsonar landlæknis birtur í
14. árg. bls. 130.
Eftir mannskaðann mikla 7. apríl
1906, þegar „lngvar" fórst við Viðey
og allir skipverjar druknuðu, gengust
> nokkrir menn fyrir samskotum til björg-
unarbátskaupa og til hjálpar þeim, sem
mistu aðstandendur sína í því veðri.
V. af því sem inn kom var ákveðið
að færi til byggingar björgunarbáts.
Sjóður þessi er enn til og liggur til
geymslu hjá bæjarfógetanum í Reykja-
vík og mun nú vera sem næst kr.
3500. —
Frekari framkvæmdir urðu ekki í
þessu máli, enda voru kringumstæðurn-
ar þá að breytast. Skúturnar voru að
leggjast niður, en þær höfðu, svo sem
kunnugt er, verið mestu manndráps-
bollarnir. Þá var líka farið að koma
gott skrið á byggingu Reykjavíkurhafn-
ar, og björgunarskip, sem stöðugt var
tilbúið ef hjálpar þurfti, farið að hafa
þar fast aðsetur. Þar að auki voru
skoðanir manna mjög skiftar um nyt-
semi björgunarbáts og fyrirkomulag
starfsins. Vildu sumir að smíðaður væri
björgunarbátur, sem hefði fast aðsetur
í Reykjavík og vissir menn fastráðnir
í landi til að bregða við, ef þörf væri.
Aftur á móti voru margir, sem álitu
slíkt fyrirkomulag aldrei geta komið
að gagni, en vildu láta smíða fullkom-
lega haffært skip, sem jafnframt væri
notað til annars, voru þá sumir með
hugmyndinni um spítalaskip, aftur aðrir
vildu gera það að skólaskipi, og enn
aðrir, einkum á síðari árum, vildu
sameina það landhelgisgæslunni.
En það er svo margt annað, sem
getur verið til hjábar í þessu máli, t.
d. býst jeg við að hin nýja stranga
reglugerð um skoðun skipa komi að
miklum notum. Sömuleiðis er Fiski-
fjelagið að beita sjer fyrir því, að lögð
verði símalína út að Reykjanesvita, en
sú símalína er eingöngu til þess, að
vitavörðurinn geti gert aðvart ef hann