Morgunn - 01.06.1997, Blaðsíða 30
S.li.F.H. 30 ára
þeirra ágætu störf og farsælan þátt að stofnun og vel-
gengni félagsins okkar og þeirra.
Við söknum þessara innilega, svo og hinna mörgu
ónafngreindu frá okkur héðan förnum, en við vænt-
um að saman kunni síðar, leiðir að liggja í veröld
meiri samræmis, birtu, fegurðar og fullkomnunar og
sú von er til þess fallin að létta vegferðina hér, sem
enn er ófarin.
Megi Sálarrannsóknafélagið í Hafnarfirði eiga
langa og farsæla framtíð fyrir höndum, sér og félags-
mönnum til heilla og hamingju, bæ, þjóð og landi til
blessunar.
Stórskáldið Einar Benediktsson lýkur útfararljóði
eftir merka konu á þessa leið:
Af eilífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en auga sér,
mót öllum oss faðminn breiðir.
Getum við ekki litið svo til, að markmið og starf
þessa félags okkar, sé í nokkrum samhljómi með orð-
um skáldsins?
Sé svo, þá er að góðu marki stefnt. Gengið til góðs,
götuna fram eftir veg. □
28 MORGUNN