Morgunn - 01.06.1997, Blaðsíða 50
Sálarrannsóknahreyfingin...
En öll grundvallast þessi draumsýn á betra, á
miklu betra, á margfallt betra sambandi við handan-
heimana en er í dag í gegnum þessar miðilsleiðir sem
við höfum nú. Og slíkt er alls ekki ógerlegt.
Tæknilega er ekkert, né væri, í veginum fyrir þess-
um breytingum ef vilji er fyrir hendi.
Nota bene: Það er ekkert tæknilegt í veginum fyrir
því að þessari leið yrði ekki náð! Nákvæmlega alls
ekkert. Öll þekking á leiðunum liggur fyrir hjá mann-
kyninu. Aðeins vantar vilja til að halda þangað í
gegnum allar þær niðurstöður sem við höfum nú þeg-
ar í dag á grundvelli spíritismanns og handanheima-
fræðanna almennt! En það kostar vilja, vinnu, fórnir,
peninga, tíma, - og aftur vinnu, peninga og tíma, ef
árangri á að ná! Og þar stendur hnífurinn í kúnni.
Spurningarnar sem eftir standa eru því: Viljum við
halda út á þessa braut, í þessa átt byðist okkur það á
annað borð? Og er slíkt raunverulega hægt? Og ekki
síður hvaða aðstæður þyrftu að vera til staðar til að
ýta þessari þróun af stað? Það verður því miður að
bíða betri tíma og pláss til að ræða það en hér er
mögulegt nú. □
Höfundur er skólastjóri
Sálarrannsóknaskólans
og í varasijórn SRFI.
48 MORGUNN