Morgunn - 01.06.1997, Blaðsíða 20
S.R.F.H. 30 ára
Með í'undinum 25. maí og framhaldsfundinum 15.
júní 1967, var stofnun sálarrannsóknafélags í Hafn-
arfirði orðin staðreynd. Stjórn kosin og í formanns-
sæti réttur maður á réttum stað.
Framtíðin beið fagnandi með blóm við barm.
Hafsteinn Björnsson gekk nú fram á sviðið í nýjum
þætti sinnar lífssögu. Hann hafði mest að segja um
dagskrárefni fundanna. Hann útvegaði af eigin ramm-
leika, þá aðila, sem efni lluttu, og þeir voru ekki af
verri endanum. Þarna var um úrvals fólk að ræða.
Agætt hvert á sínu sviði. Það var eins og hann léki
persónunum af fingrum fram. Fyrir kom að óþarflega
lengi drógst ákvörðun um efnisflytjendur en aldrei
kom það að sök. Dagskráratriði brugðust ekki. Ef svo
bar við að einhver forfallaðist á síðustu stundu, þá
náði Hafsteinn í annan síst verri í hans stað.
Sjálfur flutti hann iðulega ávörp eða erindi, sem
vöruðu í minni. Efnið þannig valið, sterkt og þrótt-
mikið mál og athyglisverð framsögn. Hann var
„prímus mótor félagsins," sagði Oliver Steinn um
Hafstein, „orkugjafinn einstaki.“ Hann gat og gripið
skyndilega til skyggnilýsingafunda ef honum fannsl
hugur fundarmanna standa til þess.
Fundir í félaginu hafa verið haldnir einu sinni í mán-
uði frá október til maí. Hin síðari árin hefur janúar-
fundur stundum verið felldur niður. Fyrstu árin voru
fundir haldnir síðasta mánudag hvers mánaðar. Breytt-
ist síðan í annan miðvikudag mánaðarins og nú hin
síðustu ár í annan fimmtudag mánaðarins að jafnaði.
Fundarstaðirnir hafa verið þessir: Fyrst Góðtempl-
arahúsið, síðar Alþýðuhúsið, svo Iðnaðarmannahús-
ið en mörg síðustu árin hefur Góðtemplarahúsið hýst
18 MORGUNN