Morgunn - 01.06.1997, Blaðsíða 32
í ferðamannaiðnaði
Myndirðu trúa því að milljónamæringur, Mike Ro-
bertson að nafni, byði 5 milljóna króna verðlaun
hverjum þeim, sem getur þjálfað draug til þess að
birtast eftir pöntun á hóteli hans, Dromquinna í
Killarney á Irlandi?
Það myndi vissulega laða að mikla fjármuni fyrir
milljónamæringinn ef draugur myndi birtast hjá
honum eftir pöntun, rétt eins og sæljón í sædýragarði
og þar með vafalaust, verða mikil lyftistöng fyrir
hótelrekstur hans.
Auðvitað fékk Mike Róbertson, sem er fyrrum eig-
andi stórmarkaða, nokkur sérkennileg bréf þegar
hann auglýsti í írsku dagblaði eftir sérfræðingi, sem
gæti látið undarlegur verur birtast eftir óskum.
Og eins og reyndar mátti búast við, þá hefur eng-
inn draugaþjálfari Iátið sjá sig enn sem komið er, en
eftir að auglýsing birtist, þá hefur hann orðið fyrir
ásókn annars konar vera, - þ.e. fjölmiðlafólks.
„Eg hef komið fram í öllum spjallþáttum, í öllum
dagblöðum, og nú síðast er mér sagt að upptökulið
30 MORGUNN