Morgunn - 01.06.1997, Blaðsíða 44
Sálarrannsóknahreyfmgin...
ir sínar síðar meir í næsta heimi/lífi á nokkurn hátt.
Dómsdagur í einni eða annari mynd er ekki til og því
þarf maður aldrei að svara fyrir nokkuð af því sem
maður gerir í heimi hér. Skilaboðin verða því: Það er
allt í lagi að olnboga sig áfram með svikum, lygum,
prettum, ofbeidi og öðrum þaðan af verri mannkost-
um, þar sem maður þarf aldrei að svara fyrir slíkt í
öðrum heimi, þar sem slíkur handanheimur er ein-
faldlega ekki til. - En eins og kunnugt er, er ein meg-
in niðurstaða spíritismanns sú að bæði staðsetning
okkar í næsta heimi sem og lífsform, markast að
miklu eða öllu leiti af verkunum hér í heimi og það
nú. Við flutning yfir í næsta heim er mjög fljótlega far-
ið ítarlega yfir allt jarðlíf viðkomandi með leiðbeinend-
um sem allir fá til þessarar yfirferðar. Af miðilsfunda-
fréttum (þ.e. handanheimafréttum) að dæma, þá vildu
margir eða flestir nýfluttir jarðarbúar þangað, hafa
vitað fyrr af þessum Iögmálum handanheimanna þeg-
ar lífsfilman er spiluð þarna hinum megin, í fyrstu
kennslustundunum sem þar eru haldnar fyrir nýlið-
ana.
En hvað segir menntakerfið um spíritismann og
niðurstöður hans?
I þessu dásamlega opinbera menntakerfi sem við
getum að sjálfsögðu alls ekki verið án, enda engin
ástæða til, er samt ekki sagt eitt einasta orð um lífið
eftir dauðann eða þennan andlega málaflokk yfir höf-
uð. Ekki eitt einasta orð um miðilsfundi, um lækn-
ingar að handan, né um nauðsyn kærleiksorkunnar,
hvað þá um rannsóknir á handanheimum í sinni víð-
ustu mynd.
Og hvar er þar heldur minnst á líkamninga, á
42 MORGUNN