Útvarpstíðindi - 16.12.1940, Blaðsíða 14

Útvarpstíðindi - 16.12.1940, Blaðsíða 14
stilla þau sem hæst, þá ýla þa.y og skrækja svo, að þau eyðileggja líka móttöku hjá þeim, sem kraftmeiri tæki hafa. Er þaö oft ófagur og gremjulegur söngur — þótt í góð tæki sé — þegar Minsk er sem sterkust, og svo bætist við ýlið úr þessum litlu tækjum. Þetta, sem hér er lýst, er okkur útvarps- notendum í Húsavík f'ullkomið vandræða- efni. Tilkynnt var í útvarpinu, að lampi hefði bilað í sendistöðinni. Sé svo, þá virðist okk- ur taka nokkuð langan tíma að útvega ann- an. En séu hins vegar aðrar ástæður til þess, að ekki er útvarpað með fullri orku, þá finnst okkur réttara að láta útvarpsnotend- ur vita um þær, svo að þeir bannsyngi ekki ráðamönnum útvarpsins að ástæðulaiusu fyr- ir það, hve lengi þeir séu að útvega þennan lampa. Eiðastöðin heyrist ekki svo vel hér, að nokkur úrbót sé. Æskilegt væri að fá að vita, hvort nokkur von er um orkuaukningu sendi- stöðvarinnar fyrst um sinn. Sé það vonlaust, getur farið svo, að sumir hér telji sig neydda til að hætta útvarpsnotum. Á ég þar einkum við þá, sem eiga litlu tækin, en hafa ckki gagn af þeim undir þessum kringumstæðum og treysta sér ekki til að kaupa dýrari tæki, þótt fáanleg væru.Vilja þá heldur ekki borga afnotagjöld fyrir það, sem þeir hafa lítil 6em engin not af. En mikið þráum við það, að Útvarp Reykjavík fái fullan þrótt.------ S. Kristjánsson. Svar: Ofanritað höfum vér rætt við verk- fræðing útvarpsins, hr. Gunnlaug Briem. — Tjáir hann oss, að lampi sá, er um ræðir, hafi verið pantaður frá Englandi í fyrra- vetur, en sé enn ókominn. En auk þess munu vera fyrir hendi aðrar ástæður, sem valda því, að stöðin fær ekki að auka orku sína. Þær verða þó ekki greindar hér að svo stöddu. En vonandi er, að þetta ástand þurfi ekki til lengdar að hindra mönnum útvarps- not. í bréfi utan af la'ndi, dagsett 17. nóv. s. 1., segir méðal annars: — Ég get ekki án „tíðindanna" verið, á meðan ég hef tækifæri til að hlusta á útvarp. — Maður saknar veðurfregnanna, en um slíkfc þýðir ekki að tala, á meðan hemaðar- brjálæðið geisar yfir löndin. — Annars geri ég mór vonir um góðar dagskrár hjá útvarp- inu £ vetur. — Útvarpssagan er góð, sam- anþjnppað listaVerk, bæði frá hendi höfund- ar og þýðanda, og ftutningur Hjörvars er alltaf góður. — Þér megið skila því til Páls ísólfssonar, að hann hafi slegið á hinn rétta streng, þegar hann fór að aga ósýnilega hlust- endur og kenna þeim að „taka undir“ með sér. Sá eini tími, sem verið hefur af þess- um dagskrárlið, var bæði skemmtilegur og lærdómsríkur. Margir hlökkuðu til næsta tíma Páls, en hann fórst því miður fyrir. — Já, það er margt gott, sem útvarpið flytur okkur. Ég vona, að þróun útvarpstækninnar hér haldi áfram, svo að ekki verði þess langt að bíða, að við getum séð þá, sem efni flytja í útvarpið. Óska Útvarpstíðindum gæfu og gengis. Ingim• IngimuncLar, Svanshóli. Söng hann me3f Ég hlustaði á „Takið undir" nú í kvöld og hafði mikla ánægju af. Það er hressandi söngur og Páll ísólfsson stjórnar með mikl- um skörungsskap. Einhver var að hafa orð á því um dagiun, að lögin væru sungin á of háu tónsviði og eftir kvöldið í gær, held ég, að mér sé óhætt að fullyrða, að vel færi á því, nð stöku sinn- um væri sungið á dálítið lægra tónsviði, svo að við þessir með djúpu raddimar fengj- um að ,,taka undir“, án sífelldrar hræðslu við að „springa". Ég hef líka Pál ísólfsson gmnaðan um að syngja ekki með á hæstu tónunum og væri gaman, ef „Útv.tíðindi“ vildu upplýsa, livort ég hef ekki á réttu að standa, því að svo vel þekki ég söngrödd Páls, að ég veit, að hann er engin tenor-hetja. Með vinsemd. Á. B. Aðspurður segist P. í. syngja með, stnmd- um og stundum ekki. Kveðst oft eiga svo annríkt við hitt og annað í sambandi við söngstjómina, að hann hafi ekki tíma til að syngja. Ekki vill hann viðurkenna, að hann hlífi sér fremur á háu tónunum en öðrum, „-----en berið bréfritaranum annars kveðju mína/‘, segir Páll, „og það með, að ég kom- ist a. m. k. eins hátt og hann!“ 142 ÚTVARPSTlÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.