Útvarpstíðindi - 07.04.1941, Side 2
í skrá yfir bækur, sem seldar voru
á uppboði einu í París um miðja
fyrri öld er bókin nr. 889 talin að
vera „Stjórnarskrá franska lýðveld-
isins, Dijon 1793, 1. bindi í 8vo, inn-
bundin í mannsskinn". — og það er
í raun og veru ósvikið „mannsskinn"
á spjöldunum og á kjölnum á þess-
ari stjórnarbyltingarbók, er byrjaði
á því, að lýsa og láta mikið yfir
mannréttindunum, en það var ekkert
einsdæmi, heldur þvert á móti. Á
stjórnarbyltingartímanum var álitið
sjálfsagt, að binda allar uppáhalds-
bækur í mannsskinn, og þótti ekkert
band eins fallegt. Þá voru til sérstak-
ar verksmiðjur, sem útbjuggu þetta
lýðveldisleður, meðal annars var ein
í Meudon, sem sútaði mannsskinn
alveg eins og dýrahúðir. Menn hirtu
sem sé skinnið af mönnum þeim, sem
teknir voru af, þegar það þótti nýti-
legt, og af karlmönnum fékkst oft
leður, sem var betra og þéttara í sér,
heldur en gemsuskinn, en af kven-
fólkinu var húðin aftur á móti laus-
ari í sér; og var hún því minna not-
uð. Þetta uppátæki stjórnarbyltingar-
mannanna, að nota skinnið af hinum
líflátnu höfðingjum og stórmennum
ÚTVARPSTlÐINDI
koma út vlkulega aC vetrlnum, 28 tölubl.
16 blaBslSur hvert. 3. árgangur kostar
kr. 7.60 tll áskrlfenda og greiClst fyrir-
fram. 1 lausasölu kostar heftiC 35 aura.
Ritstjóri og ábyrgSarmaOur:
KRISTJÁN PRIÐRIKSSON
BergstaBastr. 48. - Slmi 4937
Afgr. 1 Austurstr. 12. - Stmi 6046
Útgefnndli H/f. Hlustandlnn.
lsaíoldarprentsmiSJa h/f.
í þarfir iðnaðarins, náði eigi aðeins
til bókbandsins; mannsskinnið var
einnig notað í ýmsa aðra handunna
og saumaða muni. Sem betur fór átti
þessi skrælingjaiðngrein sér ekki
langan aldur. Hún leið undir lok með
tímabili því, sem hafði komið henni
á fót.
*
Jón: Hvað er hann gamall, sá litli.
Móðirin: Sex mánaða.
Jón: Er það yngsta barnið yðar?
*
Þegar Jón rauði drukknaði.
Rauði Jón í saltan sjó
sagður er nú. dottinn;
þarna fékk þá fjandinn nóg
í fyrsta sinn í pottinn.
Ljótur var nú líkaminn
og lítið á að græða,
en aftur sálar-andstyggðin
afbragðs djöfla-fæða.
Páll ólafsson.
Annast
allar
/ 8£ml 27w\ viðgerðir
iHafnarstr 19: á
\ Reykjtvík j
útvarpstækjum
Otto B. Arnar Fljótt
LÖCGILTUR ÚTVARPSVIBK ve!
ódýrt
370
ÚTVARPSTÍÐINDI