Útvarpstíðindi - 20.11.1944, Qupperneq 2

Útvarpstíðindi - 20.11.1944, Qupperneq 2
VÍSl’R KFTIR KÁINN. 1930 var gefin út bók er nefndist Vestan um haf. og flutti svnishorn af Ijóð'um og sögum Vest- ur-Islendinga. I>ar var auðvitað Káinn, cn svo illíi hafði tekizt lil við prentun, að svartur blett- ur var á nefinu á mynd hans í bókinni. Þá kastaði hann fram þessari stöku: Ekki cr þelta falleg frélt, scr flytur netla stefið: Þeir hafa sett, ef sé ég rétt, svartan blelt á nefið. Til þeirra, sem sendu honum bókina, orti Káinn þrjár vísur, og er sú fyrsta svona: Þið senduð mér bókina bundna í skinni, með blettinn .á nefinu — geymdan þar inni. íig hafði’ ekki mikil af höfðingjum kynni, en heíðraði landið með fjarveru minni. Sigurður Nordal var á ferð i Vesturhehni 1931. Langaði hann til að ná fundi Káins, er hann hafði mikið dálæti á, og varð það úr, að þeir mæltu sér mót í Winnipeg. Þurfli Káinn að fara til mótsins langan veg. Gert var ráð fyrir að hann myndi þurfa að sitja í veizlum með prófessorn- um og kvartaði Káinn undan því, að liann væri ekki skrýddur brúðkauþsklæðúm, fjósamaðurinn frá Dakota. Ekki lét hann þetta þó hefta för sína, en orti i tilefni þessa: Ef ég fer, þá fer ég ber, ég ferðast eins og Gandhi. Þekktur er ég, heima og hér, holdi klæddur andi. Þetta var á þeim árurn, sem offramleiðsla í Bandaríkjunum var sem frægust. Og, er menn spurðu Káinn eftir nýjum vísum, svaraði hann, að hann færi eftir boði yfirvaldanna um að minnka framleiðsluna, enda væri sín framleiðsla orðin svo að segja engin. Ut af því hafði hann gert þessa vísu: ÚTVARPSTÍÐINDI koma út hálfsmánaðarlega. Árgangurinn kostar kr. 15.00 og greiðist fyrirfram. Af- greiðsla Hverfísg. 4. Sími 5046. Útgefandi h.f. Hlustandinn. Prentað i Víkingsprenti h.f. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Gunnar M. Magnúss og Jón úr Vör. ♦aMHHaMHroMiinuiomminiiiiimuiOTiwffuuiraiiiinnK* Skálda minnstur, fyrst. ég fann. frekar þó sé skrítið, eina kúnst, sem enginn kann, að yrkja nógu lítið. Káinn er fæddur á Akureyri, en fór ungur utan. Til vinar sins Tryggva Aðalsteins sendi hann bók sina Kviðlinga og ritaði á þá þessa vísu: Mér er eins og öðrum fleiri, ættjörð týnd og gleymd, samt er gamla Akureyri enn í liuga geymd. Fjalla-Eyvindur Jóhanns Sigurjónssonar hefur verið leikinn víðsvegar um Islendingabyggðir Ameríku. Einhverju sinni horfði Káinn á slíka sýningú. Þá varð honum hugsað heim til íslands og kastaði fram þessari vísu: Orór hvarflar andi minn upp til reginfjalla.. Takið mig í útlegð inn, Eyvindur og Halla. Um heiniþrá’ sína yrkir liann svona: • Kæra foldin kennd við snjó, hvað ég feginn yrði, mætti Iioldið livila í ró lieima I Eyjafirði. KAUPENDUR í nágrenni Reykjavíkur og út- hverfum eru beðnir að koma ií afgreiðslu blaðs- ins og greiða árganginn, annars verður liætt að senda þeim blaðið. 138 ÚTVARPSTÍÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.