Útvarpstíðindi - 20.11.1944, Page 4

Útvarpstíðindi - 20.11.1944, Page 4
ast leikstjórn og kennir þar framsögn og upplestur. Jón hefur nokkrum sinn- um lesiS upp í útvarpið, og verður inn- an skamms meS upplestur á kvöld- vöku. UtvarpstíSindi hafa ekki fyr haft tækifæri til þess að kynna Jón, en er fundum okkar bar saman hér á dögunum, varð það að samkomu- lagi, að ég skryppi með honum til Hafnarfjarðar og hann segði mér eitt og annað frá högum sínum og leikara- starfsemi. Ég dreg hér saman það, sem okkur fór á milli og gef Jóni orð- ið: — Ég er Norðlendingur í húð og hár, fæddur á Akureyri 30. október 1904, alinn þar upp og mun leita þang- að aftur, þótt ég dveljist um stundar- sakir annarsetaðar, þangað stefnir allt- af hugurinn, þar er mitt bezta um- hverfi og framtíðar-öryggi. — Ég var * á 14. árinu, þegar ég kom fyrst á leik- sviðið og lék þá púka í Skuggasveini. — Svo að þú byrjaðir á því að leika púka, — ertu þá ekki kominn á það stig nú að leika engla ? — Onei, það hef ég nú ekki gert, en persónur af mörgum gerÖum þar á milli. Ég fór þá strax að leika smá- hlutverk innanfélags í stúkum og öðr- um félögum og varð oft að hlíta dóm- unum ”fremur illa” eða "viðunan- lega“. Það var víst ekki fyrr en árið 1930, að ég þótti skila hlutverki sem fullveÖja leikari, það var í “Franska æfintýrinu”. Égkom oft fram á skemmt unum, söng gamanvísur, sagði sög- Frh. á síðu 144. 140 UTVARPSTIÐINDI

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.