Útvarpstíðindi - 20.11.1944, Qupperneq 9
I
ir, kona Halldórs Friðjónssonar rit-
stjóra. •Lék hún lengi hjá Leikfélagi
Akureyrar við hylli leikhúsgesta.
• — Hver eru þér nú hugstæðust af
þessum 60 persónugerfum, sem þú
hefur brugðið þér í ?
— Ég vil nefna fimm hlutverk, sem
mér þykir vænst um: Tom Prior í
leikritinu ”Á útleið”, Friðþjóf í
’Skrúðsbóndanum” eftir Björgvin
Guðmundsson, Theodór Friested í
”Dúnunginn“ eftir Selmu Lagerlöf,
Óvinurinn í ”Gullna • hliðinu” eftir
Davíð Stefánsson og — Ogmund í
”Skugga-Sveini“ Matthíasar.
Þá berst talið að dvöl hans hér
syðra og starfinu í Hafnarfirði.
— Það er stórhugur í Hafnfirð-
ingum, segir Jón, — þeir hafa byggt
ráðhús, sem við ætlum að vígja inn-
an skamms með frumsýningu á
”Kinnarhvolssystrum“ eftir C. Hauch.
Svo er til ætlast að leiksýningar verði
3 kvöld í viku, en kvikmyndasýning-
ar í salnum 3—4 kvöld vikulega. Ég
hef meira en nóg að gera hér í Firð-
inum, 25 áhugasama og skemmtilega
nemendur, og leiðsögnina fyrir leik-
félagið. Leikfélag Hafnarfjarðar hef-
ur ötula forystu og nokkrum efnilegum
leikurum á að skipa, sem lofa góðu.
Og nú á ég von á henni Huldu Run-
ólfsdóttur í tíma klukkan 4.
— Já, það er víst ekki rétt að eyði-
leggja ykkar dýrmæta tíma, enda næ
ég líklega í fjögurvagninn. G.
lH BANKASTRÆTI 7, REYKJAVÍK
Samkvæmisk j ólar
og kvöldkjólar.
Eftirmiðdagskjólar.
PEYSUR OG PILS
Vatteraðir
silkisloppar og
svefnjakkar.
Mikið litaúrval
Sent gegn póstkröju um allt land.
ÓTVARPSTÍÐINDI
145