Útvarpstíðindi - 20.11.1944, Side 10
Við héldum
Pcettir frá lýðveldisfiátíðinni
XVI. HIN MIKLA STUND.
Þá stígur biskupinn fram og flyt-
ur sína fyrirhuguðu ræðu. Hann talar
með raddbreytingum af töluverðum
krafti. En eftir ræðu hans syngur hinn
mikli kór bæn Matthíasar Jochumsson-
ar „Faðir andanna“.
Meðan þessu fer fram stendur mann-
fjöJdinn þögull. Umferð bifreiða er fyrir
nokkru stöðvuð á gjárbarminum, en
nokkrir síðbúnir hátíðagestir koma þó
enn niður gjána og hraða sér inn í mánn-
þröngina. Alvara er í svip flestra. Kon-
ur hafa brugðið regnhlífum á loft og
víða er staðið svo þétt, að margir njóta
skjóls hverrar regnhlífar. Fjöldi karl-
manna er berhöfðaður, og þar sem menn
standa verjulausir seytlar regnvatnið í
taumum niður kinnar og hálsa, jafnt úr
þéttu unglingshári sem af breiðum sköll-
um virðulegustu gesta. Og meðan bisk-
upinn biður drottinn guð að blessa ís-
land og börn þess um ókomnar aldir
hefst hin mikla skírn. Mannfjöldinn er
vatni ausinn úr sjálfum vorhimninum.
Og þannig stendur fól'kið klukkan 1,55,
þegar Alþingisforseti lýsir yfir gildistöku
hinnar nýju lýðveldisstjórnarskrár, segj-
andi: Ég lýsi lýðveldi stofnað á íslandi.
Þá er kirkjuklukkum hringt um land
allt í tvær mínútur. Við heyrum úr gjall-
arhorninu að mörgum klukkum er
hringt í senn. Það er verið að hringja
út gömlu árin, kveðja þau öll, sem horf-
in eru í aldanna skaut og hringja til tíða
í musteri hins nýja lýðveldis, þar sem
frjálst skal og vítt umhverfi og hátt til
lofts. Svo kyrrist allt, nema undirleikur
náttúrunnar. — Þögn. — Djúp þögn
og í þögninni erum við ein þjóð. Því-
næst er hinn 70 ára gamli Lofsöngur
Matthíasar sunginn.
Þá gengur fram forseti sameinaðs Al-
þingis, Gísli Sveinsson, og flytur ræðu.
Hann er lágur maður vexti, vasklegur í
hreyfingum, all-háleitur og borginmann-
legur í fasi. Hann fram kvæmir hér sín
embættisverk og tiikynnir, að nú hefjist
kosning forseta íslands. Þingmenn fara
höndum um seðla sína, skrifa á þá eða
Skrifa ekki, en brjóta þá saman og safn-
ast þá 50 seðlar ti’l talningar, — ættu
að vera 52, en tveir þingmenn, Skúli
Guðmundsson og Gísli Guðmundsson,
eru fjarstaddir sökum veikinda. Jón frá
Kaldaðarnesi Sigurðsson, skrifstofustjóri
Alþingis) aðstoðar Alþingisforseta við
talningu atkvæðanna, en mannfjöldinn
bíður með eftirvæntingu að heyra úrslit
kosningaiv
Og Gísli hefur talninguna. — Sveinn
Björnsson, mælir hann, — auður, — Jón
Sigurðsson, þ. e. a. s. Jón frá Kaldaðar-
nesi, — Sveinn Björnsson, — Sveinn
Björnsson, — auður, — auður, — Jón
Sigurðsson. — Þannig heldur talningin
áfram, en menn líta hver á annan, undr-
ast og bíða forvitnislegir upplesturs af
næsta seðli. Að talningu lokinni hefur
Sveinn ríkisstjóri Björnsson hlotið 30
atkvæði, Jón Sigurðsson 5 atkvæði, en
15 seðlar voru auðir. Sveinn Björnsson
er því kjörinn forseti íslands, en mann-
146
ÚTVAKPSTÍÐINDI