Útvarpstíðindi - 20.11.1944, Page 16

Útvarpstíðindi - 20.11.1944, Page 16
ÓSKATÍMAR OG JAZZ Allir, sem hlusla á Brezka útvarpið B. B. C. kannast við hin skemmtilegu atriði, Forces Favor- ites, Beqipred Records o. s. frv., þar sem þulur- inn heilsar kumpánalega upp á hlustendur og segist œtla að spila fyrir þá á grammófóninn það eða þau lög, sem þeir hafi óskað eftir. lílust- endur skrifa bréf lil ákveðins manns, sem sér um þennan dagskrárlið og biðja hann að spila það lag, sem þeir óska helzt að heyra. Petta œtti íslenzka útvarpið að taka upp, og álit ég að hentugasti timinn fyrir slikt atriði, yrði á undan lestri tilkynninga, fyrir fréttir. Ég vil nota tækifærið til að þakka danshljóm- sveitunum ágætan hljóðfæraleik s. 1. vetur og liefðu þær gjarnan mátt koma oftar fram. Mér finnst blásturshljóðfærin i hljómsveit Þóris Jóns- sonar „improvisera" lögin vel, en það mætti vera meira „swing tempo" í músikinni, og hljóm- sveitin er of lítil til að sleppa DÍanoundirleik. Að lokum örfá orð nra hina margumræddu jazz-músik, einkum vegna sérlega óhugnanlegrar lýsingar á henni í Utvarpstíðindum fyrir skömmu. Mér datt í hug þegar ég las þessa „kattarvæls- lýsingu", sagan um manninn, sem gleymdi að skrúfa fyrir symfóniutónleikana, en ránkaði fyrst við sér, þegar fiðlutónarnir fóru að dansa upp á e-streng í leik svifléttra fiðrilda, en þá þótti honum nóg um. „truflanirnar" í útvarpinu. En margir gera sér ekki grein fyrir þvi, að hvort sem það er hálistræn fiðlusóló eða eld- fjörugur jazz, sem leikinn er, liggur alltaf á bak við það ákaflega erfiður lærdómur og æfing — ásamt mikilli tekniskri snilli. Steingr. Sigfússon, Patreksfirði. ATH. En athuga ber það, að „lærdómur, æfing og teknisk snilli" eru ekki dyggðir nema að þær séu notaðar í þjónustu lífrænnar lislar. Ritstj. RÍKISÚTVARPIÐ Takmark Ríkisútvarpsins og ætlunarverk er að ná til allra þegna landsins með hverskonar fracðslu og skemmtun, sem því er unnt að veita. AÐALSKRIFSTOFA ÚTVARPSINS annast um afgreiðslu, fjárhald, útborganir, samningagerðir o. s. frv. — Útvarpsstjóri er venjulega til viðtals kl. 2—4 síðd. Sími skrif- stofunnar er 4993. Sími útvarpsstjóra 4990. INNHEIMTU AFNOTAGJALDA annast sérstök skrifstofa. — Sími 4998. ÚTVARPSRÁÐIÐ (Dagskrárstjórnin) hefur yfirstjórn hinnar menningarlegu starfsemi og velur útvarpsefni. Skrifstofan er opin til viðtals og afgreiöslu frá kl. 2'—4 síðdegis. Sími 4991. FRÉTTASTOFAN annast um fréttasöfnun innanlands og frá út- löndum. — Fréttaritarar eru í hverju héraði og kaupstað landsins. Sími fréttastofu 4994. Sími fréttastjóra 4845. AUGLÝSINGAR Útvarpið flytur auglýsingar og tilkynningar til landsmanna með skjótum og áhrifamiklQm hætti. Þeir, sem reynt hafa, tclja útvarpsaug- lýsingar áhrifamestar allra auglýsinga. Aug- lýsingasími 1095. VERKFRÆÐINGUR ÚTVARPSINS hefur daglega umsjón með útvarpsstöðinni, magnarasal og viðgerðastofu. Sími verkfræð- ings 4992. VIÐGERÐARSTOFAN annast um hverskonar viðgerðir og breyting- ar viðtækja, veitir leiðbeinjngar og fræðslu um not g viðgerðír viðtækja. Sími viðgerðarstof- unnar 4995. TAKMARKIÐ ER: Útvarpið inn á hvert heimili! Allir landsmenn þurfa að eiga kost á því, að hlusta á æðaslög þjóðlífsins; hjartaslög heimsins. Ríkisútvarpið. 152 útvarpstíðindi

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.