Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Side 3

Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Side 3
ÚTVARPSTtÐINDI 267 koma út hálfsmánaðarlega. Árgangurinn kostar kr. 25.00 og greiðist fyrirfram. — Uppsögn er bundin við áramót. — Afgreiðsla Brávallagötu 50. Sími 5046. Heima- sími afgreiðslu 5441. Póstbox 907. Útgefandi: H.f. Hluslandinn. Prentað í Isafoldarprentsmiðju h.f. Ritstj. og ábyrgðarmenn: Vilhjálm- ur S. Vilhjálmsson, Brávallagötu 50, simi 4903, og Þorsteinn Jósepsson, Grettisgölu 86. ERLENDIR GESTIR ÚTVARP FRÁ REYKHOLTI í ÞESSUM MÁNUÐI dvelja hér á landi átta útvarpsmenn frá Norður- löndum, tveir frá Danmörku, þrír frá Svíþjóð, tveir frá Noregi og einn frá Finnlandi. Þeir koma hingað til þess að ferðast um landið, kynna sér þjóð- líf, lifnaðarhætti fólksins, atvinnu- vegi, menningarstofnanir og svo framvegis. Munu þeir fara víða um landið, og mun Jón Magnússon frétta stjóri Ríkisútvarpsins verða leiðsögu- maður þeirra, en þeir njóta hér að- stoðar Ríkisútvarpsins, sem mun skipuleggja ferðir þeirra og sjá um, að þeir hafi sem mest not af ferðinni. Svíarnir og Finninn koma hingað 8. júlí, Norðmennirnir 10. júlí og Danirnir 23. júlí. Flestir eru þessir gestir starfs- menn við frétta- og upplýsingadeild- ir útvarpsstöðvanna, en nokkrir tekn- iskir starfsmenn, enda munu verða tekin viðtöl við íslendinga og flutt erindi af þeim á plötur og stálþráð. Samvinna mun vera fullkomin milli útvarpsstöðvanna um þetta efni. Sví- arnir heita: Olof Forsén, Brandill og Ivarsson. Lanirnir: Aksel Dahlerup og J. Callesen. Finninn: Vilhelm Zil- liachus, og Norðmennirnir: Fr. Chr. Vildhagen og Carl Lyche. — Það þarf eklci að hvetja íslendinga til að sýna mönnum gestrisni, en það er líka mikils virði fyrir okkur, að þess- um fulltrúum erlendra útvarpsstöðva, sem ætla að líkindum að dvelja hér í heilan mánuð og ferðast víða um landið, sé sýnt hið bezta af gestrisni okkar, að allar dyr standi þeim opn- ar, og yfirleitt sé allt gert til þess að ferð þeirra geti tekizt sem allra bezt. Merkasti útvarpsviðburðurinn í þessum mánuði verður án efa af- hjúpun minnismerkisins um Snorra Sturluson, sem fram fer í Reykholti 20. júlí. — Hér verður um að ræða sögulegan viðburð. Norðmenn færa okkur þetta minnismerki að gjöf. — Gjöfin sjálf er glæsileg, en Norð- menn láta ekki þar við sitja. Þeir búa hingað mikinn og glæsilegan leið- angur, glæsilegri en nokkur þjóð hef- ur nokkru sinni sent til annars lands. Ólafur ríkisarfi Norðmanna verður. forystumaður fararinnar, en auk hans koma forsætisráðherrann Ein- ar Gerhardsen og tveir eða þrír ráð- herrar með honum, forsetar beggja þingdeilda, háskólakennarar og vís- indamenn í norrænum fræðum, og auk þeirra tveir fulltrúar allra helztu stétta meðal norsku þjóðarinnar. — Norðmenn sýna okkur íslendingum mikla virðingu og vináttu með þessu

x

Útvarpstíðindi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.