Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Page 4

Útvarpstíðindi - 30.06.1947, Page 4
ÚTVARPSTÍÐINDI 208 Og við munum gera það sem í okkar valdi stendur til að taka vel á móti þessum ágætu gestum. Minnismerki Snorra Sturlusonar er komið hingað. En leiðangur Norð- manna kemur hingað 19. þessa mán- aðar. Sunnudagsmorguninn 20. júní verður farið úr Reykjavík og upp í Reykholt. Klukkan 1 byrjar hátíðin með ávarpi forseta Islands. Að því loknu býður formaður ísl. Snorra- nefndarinnar, Jónas Jónsson, gestina velkomna. Þá flytur Davíð skáld Stefánsson ávarp. Þá talar fonnaður norsku Snorranefndarinnar prófessor Shetelig, en síðan afhjúpar Ólafur ríkisarfi minnismerkið. — Að þessu loknu þakkar fulltrúi ríkisstjórnai-- innar fyrir gjöfina. Tveir karlakór- ar, Karlakór Reykjavíkur og Karla- kórinn Fóstbræður syngja, en Lúðra- sveit Reykjavíkur leikur þjóðsöngv- ana og norræn lög. Eins og undanfarin sumur verður nú nokkurt hlé á útgáfu Útvarpstíð- inda. Næsta hefti kemur út síðari hluta ágústmánaðar. Utva rps- AUGLÍSINGAfí og TILKYNNINGAR 1 Afgreiddar frá kl. 9 til 11 og 16.00 til 18.00 alla virka daga. Sunnudaga og helgidaga kl. 11.00—11.30 og 16—17, eigi é öðrum timum. Sími 1095. RÍKISIJTVARPIÐ Takmark Rlkisútvarpsins og ætlunar- verk er að ná til allra þegna landsins með hverskonar fræðslu og skemmtun, sem því er unnt að veita. AÐALSKRIFSTOFA ÚTVARPSINS annast um afgreiðslu, fjárhald, útborg- anir, samningagerðir o. s. frv. — Út- varpsstjóri er venjulega til viðtals kl. 2—4 síðd. Simi skrifstofunnar er 4993. Sími útvarpsstjóra er 4990. INNHEIMTU AFNOTAGJALDA annast sérstök skrifstofa. — Sími 4998 ÚTVARPSRÁÐIÐ (Dagskrástjórnin) liefur yfirstjórn hinn- ar menningarlegu starfsemi og velur útvarpsefni. Skrifstofan er opin til við- tals og afgreiðslu frá kl. 2—4 siðd. Sími 4991. FRÉTTASTOFAN annast um fréttasöfnun innanlands og frá útlöndum. — Fréttaritarar eru i hverju héraði og kaupstað landsins. Simi fréttastofu 4994. Sími fréttastjóra 4845. AUGLÝSINGAR Útvarpið flytur auglýsingar og tilkynn- ingar til landsmanna með skjótum og álirifamiklum hætti. Þeir, sem reynt hafa, telja útvarpsauglýsingar áhrifa- mestar allra auglýsinga. Auglýsinga- simi 1095. VERKFRÆÐINGUR ÚTVARPSINS hefur daglega umsjón með útvarpsstöð- inni, magnarasal og viðgerðastofu. Sími verkfræðings 4992. VIÐGERÐARSTOFAN annast um hverskonar viðgerðir og breytingar viðtækja, veitir leiðbeining- ar fræðslu um not og viðgerðir við- tækja. Sími viðgerðarstofunnar 4995. TAKMARKIÐ er: Útvarpið inn á hvert heimilil Allir landsmenn þurfa að eiga kost á því, að hlusta á æðaslög þjóðllfsins; hjartaslög heimsins. Rlkisátvarpiti.

x

Útvarpstíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.