Útvarpstíðindi - 02.05.1949, Blaðsíða 23

Útvarpstíðindi - 02.05.1949, Blaðsíða 23
Útvarpstíðindi 167 „Jæja, — — jæja? —“ sagði ég, „hvað heitið þér annars?“ „William Jacksonsagöi hann. Og þar sem ég er mjög fljótur að hugsa, sá ég þegar í hendi mér, hvað fyrir hafði komið. Þetta var náunginn, sem ég átti í rauninni að sýna dráttarvélina, en ég hafði af ofur eðlilegum ástæðum ruglast á nafni hans og herra John- sons. Það ætti að banna með lögum, að tveir menn með svo lík nöfn stundl svo líka atvinnu í sömu borg. Þetta endaði nú samt allt vel. Og þar sem ég er fæddur sölumað'ur frá nátt- úrunnar hendi, ákvað ég að hið eina rétta væri að fara með manninum í bankann — hvað ég og gerði, og nú á hann dráttarvélina. Ég sendi hér með hina staðfestu ávísun. Og ég hef ákveðið að dveljast hér í borginni enn um skeið, ef mér skyldi heppnast að selja fleiri vélar. Yðar einlægur Alexander Botts. SÍMSKEYTI Ánamaðkaborg Ills 1015 22/3. 1920 ALEXANDER BOTTS Delta gistihúsi Cyprus City Missisippi. Móttekið fyrstu skýrslu yðar og kostnaðarreikning Stop Þér eruð rekinn Stop Ræðum um kostnaðarreikninginn bréflega Stop Ef þér svo mikið sem snertið við dráttarvélinni aftur munum við sækja yður að sök samkvæmt þyngstu lagalegum ákvæðum. Dráttarvinafélagið Bændavinur Gilbert Henderson sölustjóri. SÍMSKEYTI Cyprus City Miss 51 OP 22/3. 1920 Dráttarvinafélagið Bændavinur Co. Ánamaðkaborg Ills. Móttekið bréf yðar Stop Bíðið þar til fáið næstu skýrslu mína Stop Og ekki nóg með það Stop Allur bærinn talar um hina dásamlegu dráttarvélasýningu mína Stop Johnson kom og pantaði tvær dráttarvélar Stop Plóðgarðabygging- arfélagið í bænum hefur pantað eina Stop Næsta vika á að vera Dráttarvéla- vika í Cyprus City Stop Fjöldafundur borgara mánudag til að ákveða hversu margar ánamaðkadráttarvélar borgin eigi að kaupa til vegagerða og veghefl- unar Stop Fjöldafundur skógarhöggsmanna þriðjudag hvar ég mun hvetja þá til að kaupa dráttarvélar og Jackson og Johnson munu leggja orð í belg með mér Stop Ákveðið að taka á móti pöntunum skógarhöggsmanna á miðviku- dag fimmtudag föstudag og laugardag einnig fyrir byggingarfélög og aðra Stop Segið verkfræðingum ykkar að auka framleiðsluna Stop Betra fyrir yður að endurskoða símskeyti yðar sent morgun. Alexander Botts. (Framh.)

x

Útvarpstíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Útvarpstíðindi
https://timarit.is/publication/715

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.