Bankablaðið - 01.07.1935, Síða 6

Bankablaðið - 01.07.1935, Síða 6
6 BANKABLAÐIÐ Samstarf norrænna bankamanna. Síðastliðin tólf ár hafa sambönd bankamanna á Norðurlöndum (Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og Danmörku) hald- ið árlega fulltrúafundi. Á þessum fund- um mæta venjulega 2 fulltrúar frá hverju landi, og ræða þeir þá ýms hags- munamál bankamanna. í ár var fundur haldinn í Helsingfors dagana 31. maí til 1. júní. Um miðjan maí fékk stjórn Sambands íslenzkra bankamanna bréf frá Fijin- lands Svenska Bankamannaförening R. F., þar sem þeir létu í ljós þá ósk sína, að S. í. B. sendi fulltrúa á í hönd far- andi fulltrúamót og gerðust þar með virkir þátttakendur í samstarfi nor- rænna bankamanna. Þetta boð um þátttöku var ýtarlega athugað, eftir því sem tími vannst til, en því miður var enginn möguleiki fyrir hendi til að taka boðinu — að þessu sinni. Hinsvegar mun öllum ljóst, að slík mót geta orðið til mikils gagns, ekki sízt íslenzkum bankamönnum. — Vonandi verða einhver ráð til þess, að hægt verði að koma því til leiðar, að S. í. B. sendi fulltrúa á fulltrúafund þann, sem halda á í Osló næsta ár. Þetta mjög svo þýð- ingarmikla mál verður að sjálfsögðu tekið fyrir á sambandsfundi við fyrsta tækifæri. Stéttarsamtök íslenzkra bankamanna eiga sér ekki langa fortíð, en það á að verða þeim mikill styrkur í framtíðinni að vita öll bankamanna-sambönd Norð- urlanda reiðubúin til að láta hinu ný- stofnaða íslenzka sambandi í té alla þá aðstoð, er þau geta. Eftirlaunasjóður bankastarfsmanna. Með því að fyrir dyrum stendur breyt- ing á Reglugjörð fyrir eftirlaunasjóð starfsmanna Landsbanka fslands, og þetta mál varðar bankastarfsmenn al- mennt mjög mikið, hefir stjórn S. í. B. snúið sér til herra Brynjólfs Stefáns- sonar, mag. scient., forstjóra Sjóvá- tryggingarfélags fslands h.f., og beðið hann að láta í té álit sitt um þær breyt- ingar, er hann leggur til, að gerðar verði á reglugjörðinni. Þegar Reglugjörð fyrir eftirlaunasjóð starfsmanna Landsbanka íslands var samin, voru skipulagstillögur hr. B. S. teknar til grundvallar, og er því nú mik- ils virði fyrir félaga S. í. B., að fá grein- argerð þá, er hér fer á eftir, til at- hugunar: „Ég hefi nýlega haft til endurskoðunar Reglugjörð eftirlaunasjóðs starfsmanna Landsbankans, og hefi ég í sambandi við hana gert tillögur um nokkrar breyt- ingar á reglugjörðinni, sem ég tel vei'a til bóta. Skal hér í stuttu máli gerð grein fyrir breytingum þessum, svo að menn geti betur áttað sig á þeim, því að þar sem um jafnmikilvægt mál er að ræða fyrir alla bankastarfsmenn, er það nauðsynlegt að því sé fyrir komið á sem hagfeldastan hátt, og að það fé, sem til þess er varið, komi að sem beztum not- um. — Hlunnindi þau, sem eftirlaunasjóðir Landsbankans og Utvegsbankans veita, eru tvennskonar: A. Eftirlaun handa starfsmönnum

x

Bankablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.