Bankablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 14
14
BANKABLAÐlÐ
Blek ogf penni óþarft er,
„ERIKA“ betur likar nijer.
Sporlvöruhús
Kcykfavíkur.
Verzlunin
Egill Jacobsen
hefir ávalt fjölbreyttar birgÖir af
allri vefnaÖarvöru, prjónavöru og
allskonar tilbúnum kven- og barna-
nærfatnaÖi. - Einnig Sumarfrakka,
Regnfrakka, Manchettskyrtur, Hatta,
Húfur o. m. fl.
bankarnir leysa sitt hlutverk af hendi og-
þess vegna má segja, að það, sem á við
um viðskiptamálin almennt, eigi einnig
við um þá. — Við eigum hér heima ýmsa
góða skóla, og bankar vorir eru að
mörgu leyti góðir skólar fyrir starfs-
fólk sitt. En þeir ná of skammt. Stjórn-
ir bankanna hafa líka sýnt nokkurn
skilning á þessu með því, að greiða fyrir
því, að nokkrir starfsmenn þeirra kæm-
ust utan í kynnis- og námsdvalir hjá
viðskiptabönkum þeirra erlendis. En það
þarf að gera miklu meira að þessu. —
Bankastarfsmennirnir sjálfir hafa auð-
vitað enga möguleika til að koma þessu
í framkvæmd nema með tilstyrk banka-
stjórnanna. Þeir geta ekki farið utan
nema með þeirra samþykki, og hafa
heldur ekki fé til þess að standast kostn-
aðinn af eigin ramleik. Hinsvegar sýn-
ist eðlilegast, ef um framkvæmdir gæti
orðið að ræða, að þær væru gerðar eft-
ir einhverjum föstum reglum og í sam-
ráði við félagsskap starfsmanna. Eg vil
því skjóta fram, til athugunar fyrir
aðila, hugmynd minni um þetta, og
snertir hún aðeins þá tvo banka, sem
viðskipti hafa við útlönd, og miðast við
hlutfallslegan starfsmannafjölda þeirra:
Stjórn Landsbanka íslands velji ár-
lega næstu 10 ár, í samráði við F. S. L. í.,
einn starfsmann, sem telst til þess hæf-
ur, og styrki hann til sex mánaða náms-
dvalar við erlendan viðskiptabanka,með
þeim hætti, að hann haldi launum sínum
óskertum, og fái auk þess greiddan
ferðakostnað fram og aftur. Stjórn Út-
vegsbanka íslands h.f., velji á sama hátt
annað hvert ár, um næstu 10 ára bil,
einn starfsmann, í samráði við F. S. Ú. 1.,
og styrki hann á sama hátt.
Ef þessi hugmynd kæmist í fram-
kvæmd, myndi það sýna sig, ef vel væri