Bankablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 11

Bankablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 11
BANKABLAÐIÐ 11 Förum í eigin barm. Það hefir verið talið eitt af einkenn- um einokunarverzlunarinnar, hve stirf- in afgreiðslan venjulega var. Verzlunar- þjónar litu tíðum stórum augum á sjálfa sig og sýndu alþýðu manna hroka og rembing, þótt þeir hinsvegar væru skríð- andi kurteisir við þá, sem meira máttu sín að þeirra dómi. Slík framkoma er enginn menningarvottur, enda hefir kaupsýslumönnum landsins nú skilizt það, að hún er að minnsta kosti ekki sem heppilegust á þeirri samkeppnis- öld, er nú stendur yfir. Fyrir því er af- greiðsla í búðum víðast hvar orðin góð hér í bæ og í einstaka verzlunum ágæt. Hinsvegar hefir það orð löngum legið á bönkum þessa lands, að viðmót starfs- manna yfirleitt gagnvart almenningi væri ekki sem ákjósanlegast. Hér skal ekki um það dæmt, hversu réttmætur orðrómur þessi er. Aftur á móti væri ekki úr vegi að athuga, hvaða eðliskostir hverjum bankastarfsmanni eru sérstak- lega nauðsynregir, auk hinnar sjálfsögðu leikni og kunnáttu í starfinu. I banka, eins og allar verzlanir, kem- ur fólk af öllum stéttum og á öllum aldri. Og svo er margt sinnið sem skinnið. — Hálfáttræður öldungur tekur þeirri hjálp með þökkum, sem hispursmærin tvítuga kærir sig kollótta um eða tel- ur óvirðing fyrir sig að þiggja. Slyngur kaupsýslumaður þarfnast ekki þeirra leiðbeininga, sem rosknum bónda kunna að vera nauðsynlegar, þegar í bankann kemur. Og þannig mætti lengi telja. — Liggur því í augum uppi, að glöggur mannþekkjari stýrir fram hjá mörgum skerjum, sem sá, er vinnur hugsunar- laust eða eins og sjálfvirk vél, steytir bát sinn á. Auk þess skapar sönn mann- þekking, eins og öll önnur þekking, alúð- legt og yfirlætislaust viðmót. Það skal fúslega játað, að ekki er alltaf auðvelt að vera jafnalúðlegur við alla, en góð- látleg kýmni kemur oft í góðar þarfir í þessum efnum. Þetta tvennt, ATHYGLI og KÝMNl, geta menn tamið sér, eins og flest ann- að, og mun enginn iðrast fyrirhafnar- innar, sem því er samfara, því að hvor- tveggja eðliskostirnir miða að því að létta manni starfið og þá um leið hið daglega líf. Leiti nú hver hjá sér, þú hjá þér og undirrituð hjá sér, hvort við eigum nóg af eðlisþáttunum tveim. Bára. JUNO eldavélar hvítar, emalj. eru viðurkenndar fyrir gæði um land allt. Stærðir við allra hæfi ávalt fyrirliggjandi. Á.Einarsson & Funk Vörur sendar um land allt gegn póstkröfu.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.