Bankablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 10
10
BANKABLAÐIÐ
Lárus
G.
Lúðvígsson
B skóverzlun
S er bezt.
Allir
bankasiarfs-
menn og
eitthvað af
bankastjór-
um eru sam-
mála um, að
beztar séu
bifreiðar
Sfeindórs
Sími 1580
Kvennabanki.
The Women’s Commercial Savings
Bank í Shanghai á engan sinn líka í öllu
Kínaveldi og þótt víðar sé leitað, því að
meginþorri hluthafa, starfsliðs og við-
skiptavina hans er kvenfólk. Uppruna-
lega mun það hafa verið tilætlunin, að
banki þessi yrði eingöngu starfræktur
af konum fyrir kvenþjóðina, en síðar
hefir verið slakað til í þessum efnum.
Fjármálastefna bankastjórans, ung-
frú S. W. Nyien, hefir verið sú, að gæta
ýtrustu varúðar í hvívetna. Hefir þessi
stefna hennar reynzt bankanum happa-
drjúg, því að hann hefir vaxið jafnt og
hægt, þrátt fyrir mjög örðuga tíma,
sem riðið hafa mörgum kínverskum
bönkum að fullu og öllu. The Women’s
Commercial Savings Bank er stofnsett-
ur árið 1924 með nálægt 500,000 kínv.
dollara höfuðstóli, sem þá mun hafa
jafngilt um 250,000 amerískra dollara,
en gengissveiflur hafa síðan orðið mikl-
ar og margar. Síðastliðið ár var nettó-
ágóði bankans rúmlega $ 8,000.- og
sparisjóðsfé hans nam þá meira en
$ 2,350,000.-. Stofnunin á nú sitt eigið
hús á bezta stað í Shanghai.
Af 50 manna starfsliði bankans eru
milli 30—40 konur. Bankinn rekur eng-
in útibú, en annast allskonar banka-
starfsemi auk sparisjóðsrekstursins.
Starfsliðið er prýðilega æft og hinn
bezti bankabragur á öllum rekstri stofn-
unarinnar.
Þótt bankinn sé eigi stór, borið sam-
an við marga og öfluga keppinauta
hans, hefir hann áunnið sér opinbera
viðurkenningu og er skrásettur sam-
kvæmt bankalögum landsins. Einnig er
hann í The Joint Reserve of the Shang-
hai Bankers’ Association.
Heimild: Banking, aprílhefti '35.