Bankablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 12

Bankablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 12
12 kANKABLAÐIÐ Vélar og vinna. Vér lifum og störfum nú á merkileg- um tímamótum, þar sem vélavinnan meir og meir er að létta undir við alla vinnu, og fækkar því starfsmönnum í hverri grein. Á öðrum stað hér í blaðinu er sagt frá því, hvernig vélavinnan varð þess valdandi, að The Bank of England neyddist til þess að segja upp 1000 starfsmönnum á einum degi, vegna þess að bókhaldi hans var breytt í vélavinnu. Þótt einkennilegt sé, ber bankamönn- um, t.d. í Svíþjóð og Danmörku, ekki saman um áhrif vélanna á starfsmanna- fjöldann. í Svíþjóð — að minnsta kosti í Stokkhólmi — er það áberandi, að í stærstu bönkunum hefir ekki verið fylgzt með tímanum á þann hátt að kaupa nýtízku vélar til bókfærslu. Sví- ar fara ekki dult með, hver orsökin sé, en hún er sú, að þeim er ljóst, að vax- andi vélavinna hefir í för með sér upp- sagnir og atvinnuleysi hjá núverandi starfsmönnum bankanna. Stórbankarnir dönsku hafa aftur á móti notað sér tækni vélanna til fulln- ustu, þannig að óvíða mun lengra komið í notkun bókfærsluvéla en þar. Danskir bankamenn viðurkenna yfir- leitt ekki, að vélavinnan hafi orðið til að fækka starfsmönnum bankanna, en þess má geta, að þetta mun ekki alls kostar rétt. Sé miðað við tölu starfs- manna bankanna í Danmörku eftir stríð- ið, er áhrif stríðsins og hrun í gengis- málum var orðið þess valdandi, að allt að 20% starfsmanna stærstu bankanna var sagt upp, þá mun tölu starfs- manna hafa heldur fjölgað en fækkað. En þess ber að gæta, að viðskiptin hafa margfaldazt, þar sem annars stað- ar, og það, sem mestu máli skiptir, er, að nú er mikill hluti starfanna unninn af ungum stúlkum, er yfirleitt geta ekki komizt upp í hærri laun en kr. 1.800.00 á ári, enda gjört ráð fyrir, að þær séu yfirleitt ekki lengur við störfin en frá 17—18 ára til giftingar, ca. 23—25 ára. Nú er svo komið, að einnig vér íslend- ingar erum farnir að fylgjast með í að nota fullkomnar bókfærsluvélar. Ein- staka opinber skrifstofa hefir fengið sér bókhaldsvél, og Landsbankinn hefir fengið fullkomnar bókhaldsvélar til að afgreiða með í sparisjóðsdeild bankans, en sem jafnframt er hægt að nota til að afgreiða allt annað í bankanum, ef þörf krefur og jafnóðum og ástæða er til. — Svona hvítar tennur getið þér haft með því að nota ávalt Rósól-tannkremið i þessum t iburn.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.