Bankablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 13

Bankablaðið - 01.07.1935, Blaðsíða 13
BANKABLAÐIÐ iá Utanfarir bankamanna. Allt frá því að forfeður vorir festu byggð hér á landi hafa ungir menn leit- að til annarra landa. — Fyrst framan af fóru þeir til þess að leita sér fjár og frama í hernaði og þjónustu erlendra höfðingja. — Nú hafa tímar breytzt, en enn leita ungir menn utan. Erindið er aðeins nokkuð annað: Fju'st og fremst það, að búa sig undir lífsbaráttuna, auka kunnáttu sína og möguleika til þess að geta orðið nýtir starfsmenn þjóðar sinn- ar á ýmsum sviðum. Bankastarfsemin á Islandi er tiltölu- lega mjög ung. Þjóðbankinn, elzti banki landsins, verður fimmtugur á þessu ári. — Þessi starfsemi er því enn, svo sem vænta má, rekin með nokkrum frumbýl- ingsbrag. Vér bankamenn eigum flest- ir enn eftir að læra mikið til þess að ná þeirri þekkingu og þeirri starfs- leikni, sem nauðsynleg er talin með hin- um stærri menningarþjóðum. Nú munu ýmsir svara því til, að við getum komizt af með minna í þessum efnum, sem öðr- um, en stórþjóðirnar. En eins og við- skiptaástandið í heiminum er nú orðið, er þess áreiðanlega full þörf, að sem flestir þekki og skilji almennustu við- skiptareglur viðskiptalandanna og starfshætti bankastofnana þeirra. — Af- koma þjóðarinnar öll byggist, sem kunn- ugt er, mjög á því, hvernig tekst með viðskiptin við útlönd. Það er því aug- Ijóst mál, að það skiptir miklu fyrir all- an almenning í landinu, að þeir, sem að þessum málum vinna, kunni vel til starfa. Yfiiieitt má segja, að viðskipta- málin séu nú mestu vandamálin, og þjóð- inni er því áreiðanlega mikil þörf hæfra krafta á því sviði. Úiiausn þessara mála er mjög undir því komin, hvernig Andersen & Laufh h.f. Klæðoverzlun og sau m asfof o Austurstræti 6 1. flokks efni og vinna.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.