Bankablaðið - 01.07.1935, Síða 16
Í6
BANKABLAÐIÐ
Verzlunin
Liverpool
er stærsta og fullkomnasta matvöru-
og nýlenduvöruverzlun hér á landi.
Margra ára reynsla hefir kennt henni
aÖ haga jafnan innkaupum í fullu
samræmi viíS kröfur hinna vandlát-
ustu viÖskiptamanna.
Bezía rjólið
og
munntóbakið
er frá
B
B
rödrene
raun
Kaupmannahöfn
BANKABLAÐIÐ
ÚTGEFANDI:
SAMBAND ÍSLENZKRA BANKAMANNA
RITNEFND:
BRYNJÓLFUR ÞORSTEINSSON
F. A. ANDERSEN
SVERRIR THORODDSEN
Prentað í Isafoldarprentsmiðju h.f.
Á fundi starfsmanna Landsbanka ís-
lands 17. júlí var samþykkt að halda há-
tíðlegt 50 ára afmæli bankans hinn 18.
september 1935.
Hvað á blaðið að heita? Nafn þessa
blaðs hefir verið valið til bráðabirgða.
Bankamenn eru beðnir að senda rit-
nefndinni, hið fyrsta, tillögur um fram-
tíðarnafn blaðsins.
í finnska tímaritinu ,,Kontorsvárlden“,
6. tbl., þar sem ýtarleg skýrsla er birt
um fulltrúafund norrænna bankamanna,
segir meðal annars:
„Þess skal getið, að fulltrúafundurinn
sendi hinu nýstofnaða Sambandi ís-
lenzkra bankamanna vináttuskeyti,
sem íslendingarnir svöruðu um hæl.
Engan hlekk vantar þá lengur í keðju
sambands norrænna bankamanna“.
í fyrra sumar kepptu starfsmenn
Landsbankans ogÚtvegsbankans í knatt-
spyrnu, sem lauk með sigri Landsbanka-
manna. En í sumar var keppt aftur, og
vann þá Útvegsbankaliðið.
F. S. L. I. og F. S. Ú. I. áskotnaðist á
síðasta ári fagurt taflborð frá Jóni Hall-
dórssyni & Co., og taflmenn frá Sport-
vöruhúsi Reykjavíkur. Kepptu félögin
um verðlaun þessi, og urðu úrslitin þau,
að F. S. Ú. í. varð hlutaskarpari. Næsta
keppni fer fram í haust.