Bankablaðið - 18.09.1935, Blaðsíða 6

Bankablaðið - 18.09.1935, Blaðsíða 6
20 BANKABLAÐIÐ samþykkja frv., en Grímur Thomsen, Tryggvi Gunnarsson og Þorsteinn Thor- steinsson voru foringjar hinna. Eftir miklar umræður var frv. fellt þar með 14 atkv. gegn 7. Efri deild, eða fylgjendur bankans þar, svöruðu þessu svo fáum dögum síð- ar, að þeir felldu frumvarpið um láns- félagið, sem stjórnin bar fram, og and- mælendur bankans í n. d. börðust mest fyrir. Þinginu 1881 lauk því þannig, að ekkert jákvætt lá eftir það, til að bæta úr lánsþörfinni, en vafalaust hefir bankafrv. á þessu þingi og umræðurnar um það átt nokkurn þátt í því, að sam- eina hugi þingmanna um stofnun Lands- bankans, þó það yrði ekki fyrr en 4 ár- um síðar. Bankamálið á næstu þingum. Á næsta þingi, 1888, eru borin fram tvö frumvörp um stofnun banka, sitt í hvorri deild. Fylgjendur bankans í efri deild báru fram frv. líkt því, sem þeir samþykktu 1881 og áður er lýst. En meiri hluti n. d. vildi enn ekki fallast á það. En nú var hann þó orðinn því fylgj- andi, að stofna banka, sem átti einkum að vera fasteignabanki, en mátti þó setja upp deild fyrir almenn bankastörf og jafnvel að gefa út seðla, er væri tryggðir með gulli. En ekkert samkomulag varð á milli deildanna um þessi frumvörp. Það, sem önnur samþykkti, það felldi hin. Og svo lauk því þingi. En nú voru allir orðnir sammála um að stofna banka og var þá mikið fengið, en þingmenn greindi enn á um það, í hvaða formi hann ætti að vera og að hve miklu leyti landið ætti að vera við hann bundið. í málið var líka komið kapp og stífni milli deild- anna. Hér þurfti góður sáttasemjari að koma til sögu, til að koma á miðlun, svo að stofnun bankans þæfðist ekki leng- ur fyrir þinginu. Og sem betur fór, var sá sáttasemjari til innan veggja þings- ins. Það var landshöfðinginn Bergur Thorberg. Bergur Thorberg. Bergur Thorberg, sem varð landshöfð- ingi 1882, er Hilmar Finsen fór til Kaupmannahafnar, hafði setið á undan- förnum þingum og þekkti því vel ágrein- ing þingmanna um þetta mál. Fyrir þingið 1885 hafði hann skýrt dönsku stjórninni frá bankafrv. fyrri þinga og hvað þingmenn greindi á um þau, vafalaust með ósk um það, að hún leitaði til þjóðbankans danska, til að finna þá leið í málinu, sem allir þing- menn gætu fallist á. Þetta gerði stjórn- in. Þjóðbankastjórnin vildi ekki fallast á frv. fyrri þinga, heldur lagði hún til, að stofnsetja bankann með lánstrausti landssjóðs, þ. e. að landssjóður gæfi út seðla að upphæð hálfa milljón kr., sem væru óinnleysanlegir, og lánaði þá bank- anum sem stofnfé. I þingbyrjun (8. júlí) 1885 lagði svo Bergur Thorberg fyrir stjórnarinnar hönd frv. um stofnun landsbanka fyrir þingið, sem byggt var á þessum grund- velli.

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.