Bankablaðið - 18.09.1935, Blaðsíða 19
BANKABLAÐIÐ
'i
Eftirlaunasjóður starfsmanna
Mag. scient. Brynjólfur Stefánsson
sýndi bankamönnum þá velvild að gera
eftirlaunasjóði að umræðuefni í „Banka-
blaðinu" í júlí, og skýra fyrir þeim álit
sitt á starfsfyrirkomulagi eftirlauna-
sjóðs starfsmanna Landsbanka íslands.
Jafn merkilegt mál og endurskoðun
reglugerðar um sjóðinn, ætti að vekja
geysimikla eftirtekt. Væri óslcandi, að
sem flestir ræddu þetta mál, sem, ef til
vill, aðeins kemur til athugunar á fimm
ára fresti.
Fyrir fundi F. S. L. í. nýlega, lágu fyr-
ir mjög nákvæmir útreikningar um
efnahag sjóðsins og mun flestum hafa
komið á óvart þær ályktanir, er þar
koma fram. í útreikningunum sjálfum
botnar sennilega enginn starfsmanna,
en hitt er víst, að þeir eru framkvæmdir
/
Landsbanka Islands.
af svo reyndum og lærðum rnanni, að
fullt tillit verður að taka til niðurstöðu
þeirrar, er hann kemst að, enda þótt
smá athugasemdir mætti ef til vill gera,
eins og t. d. þar sem greinarhöfundur
bendir á hættu þá, er sjóðnum geti staf-
að af drepsóttum. Ef starfsmenn skyldu
hrynja niður í drepsóttum, þá er nú
hætt við að venzlamenn þeirra færu ekki
varhluta af þeim og gæti það sennilega
höggvið nokkuð skarð í áhættuútreikn-
inginn. En sleppum þessu. I aðalatrið-
um verður útreikningurinn að takast
til grundvallar við athugun um fram-
tíðarfyrirkomulag sjóðsins.
Það virðist augljóst, að ekki geti kom-
ið til mála, að veita sjóðsfélögum aukin
hlunnindi, með sömu afkomu og nú er,
en um hitt verður ekki deilt, að nokkrir
Utvegsbanki Islands h. f.
Reykjavík.
Útibú:
Akureyr;, Isafirði, Seyðisfirði, Vestmannaeyjum.
Bankinn veitir sparisjóðsfé viðtöku til ávöxtunar
með beztu kjörum.
Vextir reiknast tvisvar á ári, þess vegna raunveru-
lega hærri en annars staðar.
Bankinn annast innheimtu bæði utan lands og innan.
Ríkist jóður ábyrgist allar innstæður, sem eru á vöxt-
um í bankanum og útibúum hans.