Bankablaðið - 18.09.1935, Blaðsíða 22

Bankablaðið - 18.09.1935, Blaðsíða 22
36 BANKABLAÐIÐ John Dickinson & Co., Líd., London, eru þegar þekktir um land allt fyrir þær ágætu vörur, er þeir hafa á boðstólum. Það mun vart finnast sá hlutur, sem búinn er til úr pa p pí r, sem Dickinson ekki hefir, og verð á öllu er mjög sanngjarnt. Sýnishorn og upplýs- ingar geta aðalum- boðsmenn okkar á Is- landi: H. Benediktsson & Co., Sími 1228. Taumlausar yfirtroðslur. Ef þeir menn, sem að jafnaði búa til árásarefni á bankamenn, — sem stétt, - úr yfirsjónum einstaklinganna, kepptu ekki að því ákveðna marki, að „skipu- leggja“ öfugstreymið, þá getur varla hjá því farið, að þeir rækju sig all ónotalega á þau sannindi, að þekking og margra ára reynsla bankamanna hefir verið lít- ilsvirt á alla lund, og margir þeirra sviftir fyrir fullt og allt hinum varfærn- ustu framtíðarvonum. Nú geta allir skilið það, að taumlausar yfirtroðslur á réttindum manna gera annað hvort, að sigra, eða gerbreyta réttri lífsstefnu einstaklingsins, því hvaða maður myndi t. d. hafa löngun til að búa til listaverk, ef hann væri sann- færður um, að enginn, hvorki fyrr né síðar, kynni að meta það, eða myndi nokkur maður vera sá græningi, að eyða beztu árum æfi sinnar og miklu fé til þess að nema vísindi, ef hann á annan auðveldari hátt gæti selt ímyndaða þekk- ingu sína fyrir úrvals stöður og tryggt lifsviðurværi? En almenningur, sem er á valdi öfga og blekkinga, hann gerir fremur lítið að því, að athuga orsakir, eða hlýða á þær málsbætur, sem undan- tekningalítið myndu upplýsa, að það valcl, sem að ósekju hefir sett starfs- mönnum bankanna takmörkuð skilyrði í viðleitni þeirra upp á við, hefir beint og óbeint orsakað þær misfellur, sem orðið hafa á starfi manna í bönkunum, því alger kyrrstaða í starfi gerir, auk þess, sem fyrr segir, það að verkum, að öll endurskoðun og eftirlit verður harla lítils virði. Gætu menn gert sér grein fyrir þessurn staðreyndum, þá verður ljóst, að refsingin ein megnar ekki að hafa tilætluð áhrif, sérstaklega þegar

x

Bankablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.