Bankablaðið - 18.09.1935, Qupperneq 20
34
BANKABLAÐIÐ
Brunatryggingar
Sjóvátryggingar _________________________
Ómótmælanlega er það eina innlenda
Líf tryggingarf j elagið
SEM BÝÐUR BEZT KJÖR GEGN
LÆGSTUM IÐGJÖLDUM Á ÖLLUM
TEGUNDUM LÍFTRYGGINGA.
LÍTR YGGINGARDEILD
Sjóvátryggingarfjelag íslands h.f.
annmarkar eru á núverandi fyrirkomu-
lagi sjóðsins, eins og greinarhöf. rétti-
lega bendir á. Leggur hann til, að farin
verði sú leið, að ekkju- og barnastyrkir
falli niður, og í þeirra stað komi dánar-
bætur, en til þeirra vill hann verja 2,5 %
af iðgjöldum til sjóðsins. Það mun vera
nærri einróma álit sjóðsfélaga, að ekkju-
og barnastyrkir megi ekki niður falla,
en hins vegar er einnig viðurkennt, að
dánarbætur séu alveg ómissandi. Einn-
ig væru örorkutryggingar æskilegar.
Þeim, er þetta ritar, virðist heppileg-
ast, að sjóðurinn starfi fyrst um sinn
á sama grundvelli og hingað til, að því
viðbættu, að til komi dánarbætur og ef
til vill örorkutryggingar. Til þess að
þetta megi verða, virðist svo að núver-
andi iðgjöld þyrftu að hækka um að
minnsta kosti ca. 2% af launafúlgunni.
I Landsbankalögunum er hámark til-
lags bankans til eftirlaunasjóðsins á-
kveðið 3 % . Til þess að sami jöfnuður
héldist og hingað til hefir ríkt, þyrfti
þetta hámark að hækka um 1 %, ef við-
aukinn um dánarbætur yrði staðreynd.
Það mun vart deilt um nauðsyn dánar-
bóta og að óreyndu mun mega gera ráð
fyrir, að jafn augljós réttarbót og hér
er gert ráð fyrir fengist fúslega hjá lög-
gjöfum þjóðarinnar.
Ef þessi hækkun væri ófáanleg, yrðu
sjóðsfélagar að auka bagga sinn og
leggja á sig 2 % aukagreiðslu. Hitt er
vafamál, hvort þeir treystust til þess,
því nú er það svo, að flestir sjóðsfélaga
hafa það lág laun, að þeir ættu erfitt
með að standa einir straum af hækkun
iðgjalda, en hitt er víst, að það væri
þeim mikil örfun, ef slíkum iðgjöldum
væri jafnað til helminga. Þeir eru víst
sárfáir, sem lagt geta fyrir fé af laun-