Bankablaðið - 01.10.1935, Qupperneq 10
54
BANKABLAÐIÐ
Happdræití Háskóla Islands
Eftir eru á þessu ári 2950 vinningar
að upphæð 643 þúsund krónur.
Hæsti vinningur 50 þúsund krónur.
Ekkí er seinna vænna.
um þá komnir í bankann, áttum ekki von
á neinum slíkum sjóði. Við urðum því að
taka aðrar leiðir til þess að sjá okkur og
fjölskyldum okkar fyrir nokkrum elli-
styrk, eða dánarbótum, eftir því sem
efni stóðu til. Fyrir mitt leyti gerði ég
þetta og varði til þess árlegri greiðslu,
eftir því sem ég sá mér fært, með því að
kaupa lífsábyrgð. Svo kom Eftirlauna-
sjóðurinn og varð þá, og er, fullerfitt að
þurfa einnig að greiða 3 % af laununum
í hann. Það er að vísu gott, að geta átt
von á sæmilegum ellistyrk eða dánarbót-
um, en það verða að vera einhver ráð til
þess að standa straum af iðgjöldunum.
Við eldri starfsmennirnir höfum einnig,
eins og þeir yngri, haft lág laun og orð-
ið að spara til þess að komast af.
Mér virðist öldungis óverjandi að fara
að hækka iðgjaldið við okkur, með tilliti
til þess, sem ég hefi nú sagt.
Þeir, sem komið hafa í bankann eftir
að Eftirlaunasjóðurinn var stofnaður,
eru allt öðruvísi settir en við vorum.
Þeir gátu þegar í upphafi treyst á þenn-
an sjóð og þurftu ekki að gera aðrar
ráðstafanir til þess að fá ellistyrk eða
dánarbætur. Frá þeirra sjónarmiði er
auðvitað sjálfsagt að verja því fé, sem
unnt er, til þess að þessi styrkur verði
sem ríflegastur. — Á marga eldri starfs-
menn er þegar búið að hlaða þeim gjöld-
um, sem þeir með nokkru móti fá risið
undir.
Þ.
.,Bankablaðið“, 2. tbl. Nokkur eintök
verða seld í Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar.