Bankablaðið - 01.12.1978, Page 20

Bankablaðið - 01.12.1978, Page 20
Melhaga á árunuxn 1949-1952 á vegum Bygg- ingarsamvinnufélags starfsmanna Landsbank- ans með fjármögnun sjóðsins allt að 60% af byggingarkostnaði. Síðan fór sú aðstoð vaxandi ár frá ári, en þó ekki sem hlutfall byggingar- kostnaðar. Segja má, að manndómsár sjóðsins hafi lið- ið áfallalítið og hann hafi veitt mörgum húsa- skjól, sem til hans hafa leitað og er nú litið á þá aðstoð sem annað meginhlutverk hans. Eftir að aldurinn fór að færast yfir sjóðinn, hefur farið fyrir honum líkt og ýmsum heið- ursmönnum á hans aldri, að hann hefur gildn- að nokkuð með árunum. En því miður er þar ekki um vöðva eina að ræða eða styrka beina- grind, heldur ber meira á óeðlilegum bólgum og samskonar þenslu, sem Jrjakar raunar sjálf- an ])jóðarlíkamann. Kunnugir telja að hér sé á ferðinni truflun á efna(hags)starfsemi lík- amans. Og eru margir uggandi um að stt mein- semd, er vrðist vera með öllu ólæknandi, verði honum að aldurtila. En bót er þó í máli, að stöðugar blóðgjafir, sem hann hefur notið og nýtur í föðurhúsum munu tryggja tilveru lians og framtíð. Og allir skjólstæðingar hans og sjóðfélagar óska honum vissulega heilla og langra lífdaga á Jressum tímamótum og Jrakka samfylgdina á liðnum fimmtíu árum. 14 BANKABLAÐIÐ

x

Bankablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bankablaðið
https://timarit.is/publication/720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.