Bankablaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 22
bankamannasambandsins
Þing danska bankamannasambandsins var
haidið í Kaupmannahöfn dagana 5. og 6. októ-
ber sl. Þingiö sátu 230 fulltrúar frá öllu land-
inu ásamt innlendum og erlendum gestum.
„Politikerne er ved at ödelægge vores
lönsystem“
Þannig komst formaður danska banka-
mannasambandsins (DBL) að orði á þinginu, eu
með ýmiss konar aðgerðum af hálfu stjórn-
valda hafa kjör bankamanna í Danmörku ver-
ið skert og hefur kjaraskerðingin verið meiri
hjá bankamönnum en átt hefur sér stað á hin-
um almenna vinnumarkaði í Danmörku, þ. e.
meðal félagsmanna Alþýðusambandsins.
Þekkir nokkur þessa lýsingu? Minnir þetta
ekki býsna mikið á þær ráðstafanir sem hér
hafa verið gerðar með „þaki“ á vísitölu sem að-
eins nær til bankastarfsmanna og opinberra
starfsmanna.
„Við höfum orðið fyrir miklum vonbrigð-
um“ sagði formaður DBL Birte Roll Holm
á þinginu. „Stjórnmálamennirnir verða að
sætta sig við, að við getum ekki tekið undir
óskir þeirra og kröfur um takmörkun launa-
liækkana. Slíkt er óhugsandi fyrir opinbera
starfsmenn og bankamenn eftir það sem á
undan er gengið, rýrnandi kaupmátt þessara
starfshópa miðað við aðrar stéttir þjóðfélags-
ins“.
Nýr kjarasamningur framundan
Nýir kjarasamningar eru nú framundan hjá
danska bankamannasambandinu. Þingheimur
virtist á einu máli um það, að hörð barátta
væri framundan. Ekki bætir það stöðuna á
vinnumarkaðnum danska, að atvinnurekendur
hal'a lýst því yfir, að nú sé krafa þeirra launa-
lækkun, þannig að enn meira ber á milli en
ella. Alla vega virðist það ljóst, að reikna má
með harðandi átökum og mun SÍB fylgjast ná-
ið með þróun mála hjá dönskum bankamönn-
um næstu vikur og mánuði.
Nýtt launakerfi
Á þinginu komu fram kröfur um nýtt launa-
kerfi fyrir danska bankastarfsmenn. Núver-
andi launakerfi var talið úrelt þar sem launa-
hlutföllin sem um var samið hafa breyst vegna
Jress að vísitöluuppbætur hafa ekki verið
greiddar sem prósenta ofan á laun heldur föst
upphæð. Hefur þetta gilt frá árinu 1975 og
af þessum sökum hafa þau launahlutföll sem
upphaflega voru umsamin breyst allverulega.
Félagsgjöld, verkfallssjóður o. fl.
Samþykkt var að mánaðarleg félagsgjöld
skyldu hækka um 10 kr. danskar frá og með
1. janúar 1979. Félagsgjöldin eru þá orðin
danskar kr. 61.70 á mánuði eða 740 danskar
kr. á ári fyrir starfsmann í fullu starfi. Þetta
gerir tæplega 44 þús ísl. kr. í félagsgjald á ári
fyrir starfsmann í fullu starfi, en til saman-
burðar rná geta Jress, að félagsgjald SÍB fyrir
yfirstandandi ár er kr. 5.500, - fyrir hvern
starfsmann.
Af félagsgjöldum greiðist tiltekin hluti í
verkfallssjóð danska bankamannasambandsins,
16 BANKABLAÐIÐ