Bankablaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 33
húsanna, jafnframt því, sem
rafmagn hefir verið lagt að
staðnum. Áætlanir eru uppi
um, að snemma í vor verði
húsunum komið upp og von-
ir standa til að þau verði til-
búin til afnota seinni hluta
sumarsins.
Bárður Daníelsson, arkitekt,
teiknar húsin, en Reynir Aðal-
steinsson, skrúðgarðaarkitekt,
hefir gert uppdrátt af landinu
og skipuleggur svæðið.
í framhaldi af eftirgrennsl-
an Hermanns Stefánssonar á
landi undir sumarbúðir aust-
anlands, hefir F.S.L.Í. keypt
ca. 9 ha landspildu við Lagar-
fljót í landi Ketilstaða.
Landspilda þessi er í vík
við fljótið, og einkar hentugt
til sumarbústaðabygginga.
Reynir Vilhjálmsson hefir
skipulagt landið og staðsett
vegarstæði að því, jafnframt
hefir hann markað stæði fyrir
fimm bústaði og leiksvæði
barna. Standa vonir til að á
næstu árum rísi þarna enn
einn sumardvalarstaður fyrir
starfsmenn L. í. á hinu veður-
sæla Fljótsdalshéraði.
Sumarið 1977 bauð Hand-
elsbanken í Danmörku F.S.
L.í. að senda dvalargesti í
tvo sumarbústaði bankans á
Sjálandi, og var ætlunin að
þetta yrði upphaf gagn-
kvæmra skipta. Þegar þá um
haustið dvöldu tvær fjölskyld-
ur ytra, og líkaði Ijómandi vel.
Sl. sumar buðu þeir okkur
dvöl 4x2 vikur og við þeim
gagnkvæmt. Kom í Ijós að 14
starfsmenn L. í. sóttu um dvöl
í Danmörku, en enginn frá
Handelsbankanum kom hing-
að. Fjórum var úthlutað dvöl
ytra, og fór sem fyrr að öllum
líkaði Ijómandi vel.
Stjórn starfsmannafélags-
ins vildi gera það sem hægt
væri til þess að fá dvalargesti
hingað, og ákvað að bjóða frú
Kærn (en hún hefir haft milli-
göngu um þessi samskipti fyr-
ir hönd Handelsbankans)
hingað til þess að hún gæti
kynnt sér aðstæður, og hvað
við höfum hér upp á að bjóða.
Frú Kærn þáði boðið og kom
hingað ásamt manni sínum
16. nóv. Jóhanna Ottesen (er
haft hefur milligöngu f. h.
starfsmannafélagsins) tók á
móti þeim og sýndi þeim
borgina og umhverfi, en
stjórn starfsmannafélagsins
og Selnefnd fóru með þau
að Laugarvatni, Gullfossi og
Geysi, og sýndi þeim Selvík.
Frú Kærn var mjög ánægð
með dvöl sína hér og allar að-
stæður í Selvík, og taldi hún
að auðvelt mundi að fá starfs-
menn Handelsbankans til að
koma hér þar sem svo margt
er upp á að bjóða.
Von okkar er að þessi heim-
sókn verði til þess, að áfram-
hald geti orðið á gagnkvæm-
um skiptum við Handelsbank-
en, þar sem komið hefir í
Ijós að eftirspurn er mikil og
bústaðirnir, sem þeir bjóða
okkur dvöl í eru sérlega nota-
legir og vel búnir.
BANKABLAÐIÐ 27