Bankablaðið - 01.12.1978, Qupperneq 47
legum breytingum á gjaldmiðlinum, skili
sér aftur í einni eða annarri mynd.
3. Ætla má, að hið lága og sílækkandi verð-
mæti íslensku krónunnar eigi sinn þátt í
því að grafa undan virðingu fyrir verðmæt-
um og áhuga manna á því að liamla gegn
verðbólgu. Þótt gjaldmikiðsbreyting hafi
vitaskuld engin áhrif á þróun verðbólgunn-
ar, má engu að síður ætla, að hún geti orðið
brýning til þess að takast á við vandann af
meiri einurð en áður og þannig orðið tákn
nýs tímabils í stjórn efnhagsmála. Ýmis
dærni má finna í sögu annarra þjóða, sem
styðja þessa skoðun. Glíman við verðbólg-
una er nú höfuðviðfangsefni íslenskra
stjórnvalda ogættu Jdví allar breytingar, sem
létta þá baráttu að vera vel þegnar og tíma-
bærar.
Nýir seðlar og mynt
Almenn og ítarleg kynning á verðgildis-
breytingu krónunnar, er tæki gildi 1. janúar
1980 mun fara fram allt árið 1979 og fram á
árið 1980. Verða nýir seðlar og mynt látin í
umferð í ársbyrjun 1980, en gamli gjaldmiðill-
inn mun verða í fullu gildi í viðskiptum fram
til 1. júlí 1980. Lögð verður áhersla á að fólk
kynni sér vel útlit og gerð hinna nýju seðla og
myntar og geri sér grein fyrir, hvernig nýi og
gamli gjaldmiðillinn svarar til livors annars.
Þannig verður á miðju næsta ári gefinn út
bæklingur um framkvæmd gjaldmiðilsbreyt-
ingarinnar svo og litprentaður bæklingur með
myndum og nákvæmum upplýsingum um út-
lit nýja gjaldmiðilsins, en það er í megin atr-
iðum eftirfarandi:
Myndefni seðlanna er af lærdóms- og afreks-
mönnum fyrri tíma, umhverfi þeirra og starfs-
sviði, sem þeim er tengt. Á framhlið er andlits-
mynd og skraut frá þeim tíma, sem maður-
inn lifði á, en á bakhlið er myndefni tengt
lífsstarfi viðkomandi manns. Innbyrðis
eru seðlarnir samræmdir í útliti. Þeir eru 7
sm. á hæð, en hálfs sm. lengdarmunur er á
milli mismunandi verðgilda og er 10 kr. seðill-
BAKHLIÐAR
FRAMHLIÐAR
in stystur eða 13 sm. Seðlarnir eru í mismun-
andi litum og þannig reynt að koma í veg fyrir,
að almenningur ruglist á einstökum verðgild-
um sökum líkra lita. Sérstök auðkenni eru fyr-
ir blint fólk á seðlunum, en pappír er með ör-
yggisþræði og vatnsmerki með mynd af Jóni
Sigurðssyni, forseta.
(Frd Seðlabanka íslands)
BANKABLAÐIÐ 41