Bankablaðið - 01.12.1979, Side 24
Hanna Pálsdóttir,
útibússtjóri í Melaútibúi Búnaöar-
bankans. Hefur starfað 18 ár í banka:
Ég vænti þess, að samn-
ingamenn okkar bankafólks
séu starfi sínu vaxnir og komi
Snorri Tómasson,
viðskiptafræðingur, Framkvæmda-
stofnun ríkisins. Hefur starfað þar
í 4 ár.
Mér líst vel á þær tölur sem
koma fram í launatöflunni í
kröfugerð SÍB. Þær miðast við
septemberlaun og breytast að
sjálfsögðu með verðlagi fram
að samningsdegi, hvenær
fram sanngjörnum kjarabót-
um, án þess að grípa til
óyndisúrræða. Þá vænti ég
þess ekki síður, að samnings-
aðilar bankanna geri sér Ijósa
þýðingu þess, að bankafólki
sem hann verður. Hvað aðrar
kröfur varðar finnst mér kraf-
an um fullar verðlagsbætur
sjálfsögð. Aðrar kröfur sem ég
vona að nái fram að ganga
eru um hækkun launa eftir
starfsaldri, skýrari ákvæði um
yfirvinnutíma og frestun or-
lofs. í heild sýnist mér kröfu-
gerðin sanngjörn.
sé boðið upp á þau kjör, að
eftirsóknarvert megi teljast að
starfa í banka. Með því móti
er hægt að velja hæfara fólk
til bankastarfa, og fæ ég ekki
betur séð en hagsmunir
bankafólks og bankanna fari
saman, þar sem öllum hlýtur
að vera Ijós þýðing þess fyrir
bankana að hafa á að skipa
sem hæfustu starfsfólki.
Ýmislegt mætti segja um
framkomnar kjarakröfur, en ef
ætti að gera því máli viðhlýt-
andi skil yrði það langt mál
svo ég kýs að hugleiða kjara-
samninga almennt.
Framundan eru óráðnir
tímar í pólitísku og efnahags-
legu tilliti. Allir segjast vilja
ráða niðurlögum verðbólg-
unnar og fáum ætti að vera
það Ijósara en bankafólki
hverskonar bölvaldur slík
verðbólga er, sem hér hefur
ríkt um langt skeið. Ég vænti
þess að meinsemd verðbólg-
unnar verði höfð í huga í öll-
um kjarasamningum, sem
framundan eru og reynt verði
að finna leiðir til varanlegra
kjarabóta. Allir eru orðnir
langþreyttir á að fá hækkaða
krónutölu í launaumslagið,
sem síðan hverfur samstundis
vegna hækkana vöruverðs og
þjónustu. Kemur slíkt harðast
niður á þeim, sem lægri laun-
in hafa. Ég vona að við ís-
lendingar berum gæfu til þess
að finna leiðir til stöðugra
efnahagslífs, aukinnar fram-
leiðni og öruggrar atvinnu fyr-
ir alla. Yrði það varanlegasta
kjarabótin.
8 BANKABLAÐIÐ