Bankablaðið - 01.12.1979, Blaðsíða 61
Fréttir
frá starfsmannafélögunum
Frá Starfsmannafélagi Lands-
banka íslands
Aðalfundur
Aðalfundur félagsins var
haldinn í samkomusal félags-
ins að Laugavegi 77, 22. febr.
sl. Þessi aðalfundur er líklega
sá fjölmennasti til þessa, enda
lá fyrir fundinum að ræða ný-
komna tilkynningu frá sparn-
aðarnefnd bankanna um nýj-
an og breyttan opnunartíma
bankanna. Fundurinn hófst kl.
20.30 og stóð til kl. 1.20. Mikl-
ar umræður urðu um mál fé-
lagsins, m.a. um reikninga og
fjárhagsáætlun og ákvörðun
árgjalds, sem verður áfram
0,8% af föstum launum í 12
mánuði. Stjórnin gaf öll kost á
sér til endurkjörs og þar sem
ekkert mótframboð barst var
hún sjálfkjörin. Á fundi 14.
marz skipti hún þannig með
sér verkum:
Varaformaður Hermann Stef-
ánsson.
Gjaldkeri Svana Samúelsdótt-
ir.
Ritari Birgir Jónsson.
Meðstjórnandi Sigrún Ólafs-
dóttir.
Varastjórn Guðbjörg Gísla-
dóttir og Ásdís Gunnarsdóttir.
Formaður félagsins er Bene-
dikt E. Guðbjartsson.
Opnunartimamálið
Eins og fyrr segir, var opn-
unartímamálið á dagskrá að-
alfundarins, og fór mikill tími
í umræður um það. Helgi
Steingrímsson sem á sæti í
sparnaðarnefnd kom á fund-
inn og skýrði málið frá bank-
ans hálfu. Flestir er tóku til
máls um þetta voru á þeirri
skoðun að ákvörðun sem
þessi væri ólögleg þar sem
hún væri breyting á kjara-
samningi. í fundarlok var sam-
þykkt ályktun þar sem segir
m.a.: „Er það skoðun fundar-
manna, að það sé öfugþróun
að lengja afgreiðslutímann
fram eftir deginum. Þvert á
móti sé rétt að stefna að lok-
um afgreiðslna kl. 15.00 og
vinnutíma Ijúki kl. 16.00 eða
16.30.
Strax daginn eftir aðalfund
óskaði stjórnin eftir viðræðum
og samvinnu við bankastjórn
um lausn á þessu máli. Segja
verður eins og er, að vilji
bankans fyrir þessu var ekki
ýkja mikill, en föstudaginn 31.
ágúst sl. náðist þó samkomu-
lag um málið, daginn áður en
Preytingin átti að koma til
framkvæmda. í þessu sam-
komulagi er sérstaklega fjall-
að um eftirtalin 5 atriði:
A. Greiðsla fyrir óhjákvæmi-
lega yfirvinnu vegna breyt-
ingarinnar.
B. Aðgerðir til að koma í veg
fyrir yfirvinnu.
C. Almennt um leiðir til að
Ijúka vinnutíma fyrr á deg-
inum.
D. Starfsaðferðir við skipu-
lagsbreytingar og samráð
þessara aðila.
E. Samráð um tækniþróun
innan bankans.
Liftryggingarmál
Á sérstökum hátíðarfundi
sem stjórnin hélt á 50 ára af-
mæli félagsins var ákveðið
m.a. að vinna að líftryggingu
fyrir starfsmenn bankans. Til
að koma þessu máli á rekspöl
hefur starfsmannafélagið
keypt þessa tryggingu til
bráðabirgða, eða frá 1. sept.
sl., en hugsjónin er sú að
þetta verði einn liður í kom-
andi kjarasamningum. Allir
starfsmenn á aldrinum 18 til
49 ára eru því nú líftryggðir
að fullu, en upphæðin lækkar
síðan úr því og dettur út við
70 ára aldur.
BANKABLAÐIÐ 45